Lagt fram ástandsmat sem unnið var fyrir húsnæði Sögumiðstöðvarinnar og verklýsing vegna verðkönnunar sem fram hefur farið, um nauðsynlegar framkvæmdir skv. ástandsmatinu.
Menningarnefnd - 50Bæjarstjóri fór yfir ástandsmat hússins, sem bæjarstjórn lét vinna í vetur.
Sl. sumar fóru fram viðgerðir sem ekki voru á fjárhagsáætlun ársins, þar sem í ljós hafði komið að ástand veggja og þaks á syðri hluta hússins var verra en haldið var. Húsið var skoðað í vetur og í framhaldinu gerð verðkönnun í mars/apríl fyrir nauðsynlegar framkvæmdir. Engin tilboð bárust í verkið, en leitað verður leiða til að framkvæma nauðsynlegar viðgerðir í vor og fyrrihluta sumars.
Forstöðumaður bókasafns og menningarmála, Lára Lind Jakobsdóttir, hefur sagt upp starfi sínu.
Menningarnefnd - 50Bæjarstjóri upplýsti að gerður hafi verið samningur um lok starfs við forstöðumanninn.
Lögð fram skýrsla forstöðumanns við starfslok, 23.04.2025, þar sem farið er yfir þau verkefni sem í vinnslu eru. Nefndin mun vinna með þessar upplýsingar.
Menningarnefnd þakkar Láru Lind Jakobsdóttur fyrir samstarfið síðastliðið ár.
Rætt um menningarmál, menningarhús og meginhlutverk bókasafns.
Menningarnefnd - 50Nefndin ræddi vítt og breitt um hlutverk bókasafns og þess húss sem það hýsir, í Sögumiðstöðinni. Nefndin telur mikilvægt að í húsinu sé opið menningar- og samfélagsstarf, sem verði til þess að styrkja samfélagið innan frá.
Nefndin ræddi einnig um hlutverk nefndarinnar og menningarmál, viðburði og fleira. Nefndin mun fara á stúfana á næstu dögum og leita eftir hugmyndum frá bæjarbúum, inní starf nefndarinnar.