Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir þau verkefni sem unnið hefur verið að síðan á síðasta fundi.
Einnig rætt um gjaldskrármál.
Menningarnefnd - 52Menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn breytingu á verðskrá bæjarins, svo hver sem leigir hús undir menningarlegan viðburð, sem auglýstur er opinn öllum, skuli ekki greiða leigu fyrir viðburðinn. Allir slíkir viðburðir yrðu birtir í viðburðadagatali bæjarins. Samkomulag yrði hverju sinni varðandi tækjakost, sbr. hljóðkerfi.
Menningarnefnd telur að með þessum breytingum á verðskrá muni menningarlíf í Grundarfirði eflast til muna. Bókun fundarBæjarstjórn vísar tillögu menningarnefndar um breytingu á gjaldskrá fyrir menningarhús til umræðu í bæjarráði í tengslum við fjárhagsáætlun næsta árs.
Drög að reglum sendar til umsagnar nefndarinnar frá bæjarstjórn. Einnig lágu fyrir svipaðar reglur frá öðrum sveitarfélögum.
Menningarnefnd - 52Nefndin gerir eftirfarandi athugasemdir:
1. gr. Athugasemd við nafnið “Uppbyggingarsjóður menningar- og íþróttamála? og telur að orðið lýðheilsa eigi frekar við en íþróttir.
5. gr. Lagt til að orðalaginu “umfang og tími verkefnis? verði breytt í “umfang, tími og kynning/auglýsing verkefnis?.
Að öðru leyti gerir menningarnefnd ekki athugasemdir við framlögð drög að "Reglum Grundarfjarðarbæjar um úthlutun úr Uppbyggingarsjóði menningar- og íþróttamála".
Menningarnefnd - 52Ákveðið var að Rökkurdagar 2025 standi frá 18. október til 5. nóvember. (Tónleikar 18. október í Samkomuhúsinu marka upphaf Rökkurdaga.)
Nefndin ræddi það að nota Facebook-síðu Rökkurdaga sem helstu upplýsingaveitu um dagskrá og annað. Aðrar síður á samfélagsmiðlum og vefur Grundarfjarðarbæjar verða henni til stuðnings.
Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að búa til fyrstu auglýsingu fyrir Rökkurdaga og koma henni í umferð. Í henni eiga að vera dagsetningar og upplýsingar um það hvert fólk getur haft samband ef það vill vera með viðburð.
Dagskráin skal vera gefin út á íslensku, ensku og pólsku. Ef hún fer í dreifingu í hús þá verði hún á íslensku með QR kóða sem vísar á dagskrána á ensku og pólsku.
Lagt fram erindi frá Ríkeyju Konráðsdóttur um menningu og nýsköpun í Grundarfirði.
Leggur hún til að stofnað verði samvinnufélag bæjarbúa og sveitarfélagsins, sem taki ákvörðun um nýtingu Sögumiðstöðvar, fjármögnun o.fl., fyrir skapandi starfsemi.Menningarnefnd - 52Menningarnefnd tekur vel í erindi Ríkeyjar Konráðsdóttur og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að koma á fundi milli hennar og menningarnefndar sem fyrst.