Starfsáætlun vetrarins lögð fram, í formi skóladagatals og skriflegrar áætlunar.
Skólanefnd - 184Linda María aðstoðarskólastjóri fór yfir framlögð gögn og sagði frá starfseminni og áætlun vetrarins.
Á haustönn 2025 eru 52 nemendur skráðir í skólann. Kennarar eru þau Alexandra Sukhova, Baldur Orri Rafnsson, Valbjörn Snær Lilliendahl og Linda María Nielsen, sem jafnframt er aðstoðarskólastjóri.
Efnt var til opins húss 27. október sl. í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans fyrr á árinu. Bæjarbúum var boðið að skoða nýtt og betrumbætt húsnæði skólans eftir breytingar síðasta árs, tónlistaratriði voru í boði og veitingar. Rúmlega 100 manns mættu og tókst þetta mjög vel og var mikil ánægja meðal gesta, eins og segir í framlögðu skjali frá aðstoðarskólastjóra.
Lögð fram skýrsla skólastjóra grunnskóla og svör við spurningum skólanefndar, einnig lögð fram símenntunaráætlun skólaársins 2025-2026 fyrir grunnskólann og skýrsla innra mats í grunnskólanum, frá júní 2025.
Skólanefnd - 184Farið yfir framlögð gögn og upplýsingar og þau rædd.
Gunnþór sagði frá því starfi sem unnið er með stjórnendum og starfsfólki skólans og Eldhamra á grunni menntastefnu.
Lögð fram gögn frá leikskólastjóra; Gögn/upplýsingar og svör leikskólastjóra við spurningum skólanefndar skv. starfsáætlun, umbótaáætlun 2025-2026, starfsáætlun Leikskólans Sólvalla 2025-26, skýrsla innra mats 2024-2025 og skólanámskrá leikskólanna (sama skjal og á síðasta fundi).
Skólanefnd - 184Leikskólastjóri fór yfir gögn og helstu upplýsingar.
Gunnþór sagði frá því starfi sem unnið er með stjórnendum og starfsfólki leikskólans og Eldhamra á grunni menntastefnu.
Bæjarstjóri fór yfir helstu framkvæmdir 2025 í skólum og við íþróttaaðstöðu.
Skólanefnd - 184Hæst ber að nefna miklar framkvæmdir á skólalóðum, bæði leik- og grunnskóla. Endurnýjuð voru leiktæki og gerðar aðrar umbætur í lóðunum.
Á grunnskólalóð var kastali og annað leiktæki endurnýjað og allt umhverfi þeirra tækja. Bekkur var settur upp við körfuboltavöll og í september var gróðursetningarátak á degi íslenskrar náttúru. Gróðursettar voru allt að 600 plöntur sunnan/austan við skólahúsið. Leiktækjum var einnig bætt við lóðina sunnan við íþróttahús, við ærslabelg.
Á leikskólalóð var hjólabraut malbikuð og nýr sandkassi byggður, rólur voru endurnýjaðar og færðar. Nýtt gróðurhús var sett upp fyrri hluta sumars, svokallað Bambahús. Þar er verið að rækta, en auk þess er þar heimili fyrir fjórar hænur sem fluttu þangað í haust sem leið.
Í leikskólanum voru endurnýjuð gólfefni í eldri hluta leikskóla og í eldhúsi, húsgögn og aðstaða í föndurstofu endurnýjuð og bætt, auk þess sem þar var málað. Lítil klósett voru sett upp í staðinn fyrir "fullorðins" klósettskálar á salernum á drekadeild (eldri hluti húss). Til stendur að setja upp nýja, sjálfvirka rennihurð í aðalinngangi. Gluggar voru málaðir, grindverk og leiktæki.
Í grunnskóla var sömuleiðis skipt um gólfefni á nokkrum stöðum, m.a. í eldhúsi, kennarastofu og göngum. Innrétting á kennarastofu var endurnýjuð að hluta. Til stendur að klæða vegg á tengiganginum milli grunnskóla og íþróttahúss, og lagfæra frágang á lögnum og dreni.
Orkuskipti í skóla- og íþróttamannvirkjum urðu þann 16. janúar sl. og er nú kynt með varmaorku (og rafmagni) en hætt að nota olíu, sem áður var gert. Í búningsklefum íþróttahúss/sundlaugar voru unnar miklar endurbætur sl. sumar, bekkir endurnýjaðir og skápar settir upp, gólf epoxymáluð og allir veggir málaðir. Hljóðeinangrun í íþróttahúsi hefur verið bætt.