Lögð fram endurbætt gögn vinnslutillögu deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar, sem samþykkt voru af hafnarstjórn á 22. fundi hennar 3. nóvember sl., þ.e. greinargerð og uppdráttur með smávægilegum endurbótum sem gerðar voru eftir fund hafnarstjórnar og skipulags- og umhverfisnefndar 10. nóv. sl.
Hafnarstjórn - 23Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða vinnslutillögu deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna, í samræmi við 40. gr. skipulagslaga.
Á 13. fundi hafnarstjórnar 5. september 2024 samþykkti hafnarstjórn tillögu til bæjarstjórnar um að óskað yrði eftir þátttöku Vegagerðarinnar í gerð nýs vegar á fyrirhugaðri landfyllingu sunnan Miðgarðs Grundarfjarðarhafnar, í tengslum við skipulagsvinnu á suðursvæði hafnarinnar. Tillagan var staðfest af bæjarstjórn á 289. fundi hennar 12. september 2024.
Fyrir þennan fund er lagt fyrir þetta fyrra erindi, með endurbótum, þ.e. breyttum upplýsingum um stærð hins stækkaða hafnarsvæðis og fleira.
Hafnarstjórn - 23Hafnarstjórn samþykkir samhljóða uppfært bréf, erindi til bæjarstjórnar, með breyttum stærðum og fleira, sem lagfært hefur verið til samræmis við deiliskipulagsvinnuna sem farið hefur fram um þetta svæði.
Lögð fram drög að erindi til Skipulagsstofnunar, bréf með tilkynningu um matsskyldu vegna stækkunar hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar, skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, ásamt greinargerð um málið, í samræmi við deiliskipulagstillögu sem nú er fram komin (vinnslutillaga).
Hafnarstjórn - 23Hafnarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu; tilkynningu til Skipulagsstofnunar um matsskyldu vegna stækkunar hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar.
Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að senda tilkynninguna til Skipulagsstofnunar, að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu hafnarstjórnar um tilkynningu til Skipulagsstofnunar um matsskyldu vegna stækkunar hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar, skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að senda tilkynninguna til Skipulagsstofnunar.