Lögð fram heildargögn, m.a. rekstraryfirlit með samanburði á deildum milli áætlana 2025 og 2026, sem og breytingum frá fyrri umræðu.
Einnig lagt fram yfirlit með greiningum á ýmsum þáttum í rekstri bæjarins (kennitölur) yfir langt tímabil.
Bæjarráð - 648Farið yfir drög að áætlun og greiningagögn.
Síðari umræða um fjárhagsáætlun fer fram í bæjarstjórn 11. desember nk.
Í tengslum við umræðu undir lið 9, um framkvæmdir í Hrannarstíg, fór Nanna Vilborg yfir forgangsröðun helstu framkvæmda í götum og við gangstéttar. Ákveðnar áherslur ræddar í bæjarráði, sem færast yfir í fjárfestingaáætlun 2026.
Reglur um tímabundinn afslátt af tilteknum eldri byggingarlóðum íbúðarhúsa gilda til næstu áramóta.
Lögð fram tillaga til bæjarstjórnar, sem felur í sér óbreyttar reglur fyrir árið 2026, þannig að tímabundinn afsláttur nái til þeirra eldri íbúðarlóða sem eftir eru og eru þær tilgreindar.
Bæjarráð - 648Lóðirnar sem lagt er til að njóti 50% afsláttar á árinu 2026 eru eftirtaldar:
Tillagan samþykkt samhljóða og kemur til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar á næsta fundi. Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir áframhaldandi afslátt af gatnagerðargjöldum til eins árs.
Lögð fram yfirfarin drög að reglum Uppbyggingarsjóðs félags-, íþrótta- og menningarmála.
Bæjarráð - 648Farið yfir fyrirliggjandi drög að reglum Uppbyggingarsjóðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að þessi tillaga verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir reglur um Uppbyggingarsjóð félags-, íþrótta- og menningarmála.
Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2026 lögð fyrir bæjarráð til umfjöllunar, í samræmi við bókun bæjarstjórnar á fundi 13. nóvember sl.
Lagðar fram eldri og nýrri útgáfa fjárhagsáætlunar, og er sú nýrri tekin til afgreiðslu.
Akraneskaupstaður hafnaði tillögu um viðbótarstöðugildi, þannig að nefndin samdi aðra áætlun og liggur hún hér fyrir.
Bæjarráð - 648Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun HeV.
Kynning á áætlun um gangstéttir og frágang á Hrannarstíg, miðjuhluta.
Lagt fram bréf til húseigenda á svæðinu frá 7. nóv. sl., einnig plöntuteikning fyrir regnbeð í Hrannarstíg.
Bæjarráð - 648Nanna Vilborg fór yfir og kynnti fyrirliggjandi áform um frágang á miðjuhluta Hrannarstígs, frá Fagurhóli og að lóð Sögumiðstöðvar, en þær framkvæmdir eru í samræmi við frágang ofar í götunni.
Lagðir fram til kynningar minnispunktar (vinnuskjal) úr umræðum á samráðsfundum sem haldnir voru 17. nóv. sl. um vinnslutillögu fyrir deiliskipulag hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar. Einnig minnispunktar um atriði sem lagt er til að verði skoðuð nánar, í tengslum við gerð deiliskipulags hafnarsvæðis (vinnuskjal).
Hafnarstjórn hefur lagt til að mánudag 8. des. nk. verði sameiginlegur vinnufundur hafnarstjórnar, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarfulltrúa - um deiliskipulagstillögu hafnarsvæðis. Áður en að þeim fundi komi, verði framangreindir minnispunktar sendir fulltrúum í skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn.
Bæjarráð - 648Bæjarráð tekur undir tillögu hafnarstjórnar um að koma á sameiginlegum fundi skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og bæjarfulltrúa þann 8. desember nk.
Bæjarstjóri sagði frá því að búið sé að panta nýja dælu í holu nr. 7, þannig að hægt sé að fá fram fulla virkni úr henni, inná varmadælukerfi mannvirkjanna.
Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, vegna skoðunar í sundlaug, sem fram fór 11. nóvember sl.
Bæjarráð - 648Búið er að lagfæra hluta af þeim atriðum sem gerðar eru athugasemdir við.
Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi gera athugasemdir við tiltekin atriði í skýrslunni, sem þau telja ekki réttar. Óskað verður skýringa/rökstuðnings frá Heilbrigðiseftirlitinu um þau.
Lögð fram til kynningar fundargerð 199. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 17. nóvember sl.
Bæjarráð - 648Í fundargerðinni er bókað að lögð séu fram drög að endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 með breytingu sem felist í að hætt sé við að ráða starfsmann til að sinna lóðahreinsunum, eins og fram kom í fyrri fundargerð og útsendri fjárhagsáætlun sem lá fyrir bæjarstjórn 13. nóv. sl. Eins sé framlag sveitarfélaga uppfært milli ára í takt við verðlagsþróun. Þessar breytingar voru samþykktar af heilbrigðisnefnd.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur Innviðaráðuneytisins, sem hefur í samstarfi við Byggðastofnun gefið út skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu ásamt leiðbeiningum fyrir stjórnvöld um mótun og framkvæmd stefna.
Leiðbeiningarnar eru settar á grundvelli aðgerðar A.15 í byggðaáætlun, Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis.Bæjarráð - 648