- Minnispunktar vinnufundar með Vegagerðinni Vestursvæði sem fram fór 1. desember sl. Þar var farið yfir ýmis atriði tengd þjóðvegi og umferð í skipulagstillögu, eins og hún var lögð fram á vinnslustigi.
- Samantekt skilaboða af samráðsfundum um vinnslutillögu 17. nóv. sl., en þetta skjal var einnig lagt fram á síðasta fundi hafnarstjórnar.
- Vinnuskjal með tillögum að áherslum og breytingum eftir samráðsfundi, fundi hafnarstjórnar og aðra vinnu að tillögunni.
- Auk þess birt gögn á Skipulagsgátt, umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu.
Hafnarstjórn - 25Hafnarstjórn fór yfir framlögð gögn með skipulagsráðgjafa.
Farið lauslega yfir þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, en helstu skilaboðin verða tekin saman í yfirlit fyrir fund skipulags- og umhverfisnefndar 8. des. nk.
Hafnarstjórn ræddi um helstu efnisatriði í skipulagstillögu, s.s. um fjölda og stærð lóða, fyrirkomulag þeirra og skilmála, um þarfir á hafnarsvæði, um tilhögun vegar og fleira.
Vinna þessa fundar verður nýtt til frekari útfærslu skipulagstillögu.
Mánudaginn 8. desember nk. er stefnt að sameiginlegri umræðu hafnarstjórnar, bæjarfulltrúa og skipulags- og umhverfisnefndar um þetta mál, og verður það hluti af dagskrá fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
Þann 2. desember sl. lauk kynningu/auglýsingatíma deiliskipulags fyrir hafnarsvæði á Framnesi austan Nesvegar. Búið er að minnka svæðið sem nemur Norðurgarði, en hann fer undir nýtt deiliskipulagssvæði (sjá mál nr. 1 á dagskrá þessa fundar).
Lagðar fram þær umsagnir sem bárust. EFLA er að vinna samantekt á efni þessara umsagna og verða þær teknar fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar 8. des. nk. og viðbrögð ákveðin við þeim.
Hafnarstjórn - 25Engar athugasemdir frá hafnarstjórn, en umsagnir sem bárust eru nánast samhljóða þeim umsögnum sem bárust við fyrri auglýsingu þessarar skipulagstillögu.