Málsnúmer 2512004F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 305. fundur - 08.01.2026

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 649. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-nóvember 2025.
    Bæjarráð - 649 Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 11,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lögð fram til kynningar fyrir bæjarráði samskipti bæjarstjóra við Skattinn, í framhaldi af beiðni Grundarfjarðarbæjar til Skattsins í júní sl., sem ekki hefur enn verið svarað.
    Um er að ræða ósk um upplýsingar, sem nýttar verða í greiningu á útsvarstekjum bæjarins, sem SSV - Vífill Karlsson - hefur unnið að fyrir bæinn.

    Einnig lagt fram erindi bæjarstjóra til fjármálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um þá stöðu að Skatturinn svari ekki erindi bæjarins sem varðar möguleika sveitarfélaga á að greina útsvarstekjur sínar með réttmætum hætti.

    Bæjarráð - 649 Svar barst 9. desember sl. um að erindinu yrði svarað með gögnum í þessari viku.
    Bókun fundar Bæjarstjóri upplýsti að þann 19. desember sl. hefðu borist gögn frá Skattinum, en að SSV hefði ekki haft tök á að fara yfir hvort það væru þær upplýsingar sem um hefði verið beðið.
  • Bæjarstjórn vísaði því til bæjarráðs að afgreiða viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2025.
    Bæjarráð - 649 Lögð fram tillaga að fjórða viðauka við fjárhagsáætlun A- og B-hluta bæjarsjóðs fyrir árið 2025.
    Helstu breytingar felast í hækkun fjárfestinga á B-hluta og tilfærslu milli A- og B-hluta. Hækkun fjárfestinga nemur 20,2 millj. kr. og tekjur hafnar eru hækkaðar á móti um 16 millj. kr.

    Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025 samþykktur samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2025.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarstjórn samþykkti 20 millj. kr. lántöku í september sl. í viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2025.
    Bæjarráð - 649 Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

    Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á bæjarráðsfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 20.000.000.- á árinu 2025, til viðbótar við fyrri samþykkta lántöku, með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram.

    Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að standa straum af afborgunum lána og nauðsynlegum framkvæmdum, einkum vegna fjárfestinga á höfn en verkefnið hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli eða tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir lántöku að fjárhæð 20 millj. kr. vegna ársins 2025, sem áður var samþykkt í viðauka 3 við fjárhagsáætlun ársins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skv. ákvörðun bæjarstjórnar á fundi 11. desember sl. var þessu erindi vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð - 649 Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Erindi Skógræktarfélagsins snýst um að rækta upp birkiskóg á svæði í landi Hallbjarnareyrar. Það land er í eigu ríkisins og hefur verið í landbúnaðarnotum. Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um málið. Skipulagsfulltrúa var falið að ræða við fagaðila. Fundað var með Fjársýslu - ríkiseignum (FSRE) síðastliðið sumar. Fram kom hjá FSRE að unnt væri að taka land undir þessi not og minnka þar með landbúnaðarland, gera þyrfti sérstakan langtímasamning um það og auk þess þyrfti að girða svæðið af.
    Skipulagsfulltrúi leitaði afstöðu Skógræktarfélagsins um þetta.
    Bæjarráð - 649 Í ljósi framangreindra upplýsinga telur bæjarráð ekki tímabært að efna til samningsviðræðna við ríkið um land í þessu skyni.

    Bæjarráð leggur áherslu á gott samstarf við Skógræktarfélagið um uppbyggingu á þeim svæðum sem þegar eru undir í skógrækt á vegum félagsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Af hálfu Grundarfjarðarbæjar var sótt um styrk til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vegna fráveituframkvæmda. Svar hefur borist um að styrkbeiðnin hafi verið samþykkt um allt að 30% kostnaðarþátttöku ráðuneytisins fyrir árin 2025 og 2026. Styrkurinn nær til framkvæmda sem falla undir blágrænar fráveitulausnir.
    Bæjarráð - 649