Yfirlit yfir efni þessa skólanefndarfundar lagt fram, samantekið úr starfsáætlun skólanefndar.
Skólanefnd - 186Gunnþór E. Gunnþórsson frá Ásgarði var gestur fundarins, í fjarfundi. Hann fór yfir stöðuna í innleiðingu menntastefnu, einkum í vinnu með leik- og grunnskóla.
Rætt um fundardaga skólanefndar, en einn fundur féll út (desemberfundur) og verður efni hans þjappað á aðra fundi fram til vorsins.
Lögð fram skýrsla leikskólastjóra með efni fyrir fund skólanefndar, en í henni eru hlekkir á ýmsar skýrslur og áætlanir, sjá framlagt skjal.
Skólanefnd - 186Leikskólastjóri fór yfir fundarpunkta sína og svaraði spurningum um efnið.
Rætt um drög að skóladagatali komandi skólaárs. Lagt til að drög að samræmdu dagatali skólanna verði lögð fram á næsta fundi skólanefndar, 16. febrúar.
Bæjarstjórn samþykkir að hitta skólanefnd, sbr. tillögu nefndarinnar, og felur bæjarstjóra og formanni skólanefndar að finna heppilegan tíma til þess.