186. fundur 15. janúar 2026 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB) formaður
  • Hólmfríður Hildimundardóttir (HH)
  • Anna Rafnsdóttir (AR)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
    Aðalmaður: Davíð Magnússon (DM)
  • Guðbrandur Gunnar Garðarsson (GGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund, gengið var til dagskrár.

1.Starfsáætlun og verkefni skólanefndar

Málsnúmer 2410009Vakta málsnúmer

Yfirlit yfir efni þessa skólanefndarfundar lagt fram, samantekið úr starfsáætlun skólanefndar.





Gunnþór E. Gunnþórsson frá Ásgarði var gestur fundarins, í fjarfundi. Hann fór yfir stöðuna í innleiðingu menntastefnu, einkum í vinnu með leik- og grunnskóla.

Rætt um fundardaga skólanefndar, en einn fundur féll út (desemberfundur) og verður efni hans þjappað á aðra fundi fram til vorsins.

Gestir

  • Gunnþór E. Gunnþórsson, ráðgjafi hjá Ásgarði - mæting: 17:00

2.Málefni leikskólans

Málsnúmer 2207006Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla leikskólastjóra með efni fyrir fund skólanefndar, en í henni eru hlekkir á ýmsar skýrslur og áætlanir, sjá framlagt skjal.



Leikskólastjóri fór yfir fundarpunkta sína og svaraði spurningum um efnið.

Rætt um drög að skóladagatali komandi skólaárs. Lagt til að drög að samræmdu dagatali skólanna verði lögð fram á næsta fundi skólanefndar, 16. febrúar.


Gestir

  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir, fulltrúi kennara við Sólvelli - mæting: 17:00
  • Nanna Vilborg Harðardóttir fulltrúi foreldra - mæting: 17:00
  • Heiðdís Lind Kristinsdóttir, skólastjóri Leikskólans Sólvalla - mæting: 17:00

3.Málefni grunnskólans

Málsnúmer 2207005Vakta málsnúmer

Lögð fram ýmis gögn frá grunnskólanum og skólastjóra.
Skólastjóri fór yfir ýmis gögn og svaraði spurningum um efnið.

Skólanefnd spurði út í framlagða tillögu skólastjóra um stofnun sérdeildar, en ekki tekin afstaða til tillögu að svo stöddu.

Gestir

  • Dagbjört Lína Kristjánsdóttir, fulltrúi kennara - mæting: 17:40
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir, fulltrúi foreldra - mæting: 17:40
  • Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri grunnskóla, tónlistarskóla og Eldhamra - mæting: 17:40

4.Málefni leikskóladeildarinnar Eldhamra

Málsnúmer 2207008Vakta málsnúmer

Lögð fram sameiginleg Skólanámskrá Leikskólans Sólvalla og leikskóladeildarinnar Eldhamra fyrir skólaárið 2025-2026.



Einnig lögð fram starfsáætlun Eldhamra 2025-2026.





Farið yfir framlögð gögn. Skólastjóri svaraði spurningum sem beint var til hans um efnið.

Gestir

  • Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri - mæting: 17:40
  • Dagbjört Lína Kristjánsdóttir - mæting: 17:40
Skólanefnd óskar eftir að fá að hitta bæjarstjórn til umræðu um málefni leikskólastigs.

Lokið var við fundargerð í framhaldi af fundinum og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 19:00.