Lögð fram til umræðu og afgreiðslu deiliskipulagstillaga skv. 41. grein skipulagslaga. Frá fundum skipulags- og umhverfisnefndar 8. desember sl. og 20. janúar sl. hefur verið unnið frekar að tillögugerð, með hliðsjón af sjónarmiðum þeim sem fram komu í innsendum athugasemdum við tillöguna, á þremur kynningarfundum sem haldnir voru 17. nóvember sl. og í ábendingum á nefndarfundum. Gerðar hafa verið ýmsar breytingar frá vinnslutillögunni.
Hafnarstjórn og hafnarstjóra var boðið á fundinn og sitja fundinn undir þessum lið.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 275Herborg Árnadóttir og Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafar hjá Alta eru gestir fundarins í fjarfundi undir þessum lið. Auk þess sitja fundinn hafnarstjóri og hafnarstjórn.
Farið yfir umræður og sjónarmið sem fram komu á fundum sem efnt var sérstaklega til með húseigendum við neðanverða Grundargötu, frá nr. 4-28, og í Gröf I-IV. Fyrir fundi 4. og 5. febrúar sl. voru kynnt drög í vinnslu sem gerðar höfðu verið á ýmsar breytingar frá vinnslutillögu.
- Byggingarmagn á lóðum sem eru næst Grundargötu hefur verið minnkað um 20%. - Lóðir næst Grundargötu hafa verið minnkaðar og lóðir ná ekki eins langt að Gilósi og í vinnslutillögu. - Hámarkshæð bygginga á þessum lóðum var lækkuð úr 7,5 í 7 metra. - Á svæði sjávarmegin við tilvonandi nýja götu hafa metralóðir verið teknar út. - Lóðarmörkum breytt á lóðum næst nýjum viðlegukanti. - Gilósinn fær nú mun rýmra grænt svæði. - Lóðir sunnan Gilóss, við smábátahöfn, hafa verið betur skilgreindar og skilmálum þeirra breytt. - Lóðarmörkum á lóðum á Norðurgarði hefur verið breytt og þær færðar frá grjótvörn á grunni tilmæla frá Vegagerðinni um aðgengi. Þar er einnig lagnasvæði fyrir neðanjarðarlagnir. - Settir hafa verið skýrari skilmálar varðandi aðlaðandi ásýnd og frágang frá lóðum við Grundargötu að iðnaðarsvæði og göngustíg þar á milli gert hærra undir höfði hvað varðar umhverfisfrágang. - Göngustígur á milli iðnaðarsvæðis og húsa við Grundargötu verði akfær og akstur heimill fyrir húseigendur, gesti og viðhald á þeim hluta stígsins sem tekur við til suðurs, þegar götu sleppir.
Óskað er eftir fleiri skýringarmyndum í deiliskipulagstillöguna, þar á meðal ásýndarmyndum og betri hæðarmerkingum. Rætt um hugsanlega ljósmengun frá þungaflutningum þegar keyrt er af hinni nýju götu og uppá þjóðveg 54.
Rætt um áhyggjur af frágangi og fráleggi lausafjármuna á iðnaðarlóðum á landfyllingu og skilmálagerð þar að lútandi. Rætt um forgangsröðun við uppbyggingu svæðisins. Rætt er um vegalengdir. Fram kemur að fjarlægð núverandi íbúðarhúsa við Grundargötu að byggingarreitum sem lagðir eru til sé á bilinu 27-32 metrar. Þá eru 142 metrar frá mörkum núverandi lóða við Grundargötu að sjóvarnargarði áformaðrar landfyllingar.
Skipulagsfulltrúi leggur áherslu á það í lok umræðu að enn sé hægt að breyta deiliskipulagstillögunni eftir að auglýsingatíma lýkur. Góðar ábendingar hafi komið fram á fundi með íbúum og á þessum fundi nefndarinnar.
Samhljómur er meðal fundarmanna um að halda skipulagsgerðinni áfram, en áfram verði leitað leiða til að bregðast við ábendingum og draga úr grenndaráhrifum þeirra sem eiga fasteignir næst landfyllingunni.
Formaður leggur til að skipulagsfulltrúi, að fengnu samþykki hafnarstjórnar og staðfestingar bæjarstjórnar, fái umboð til að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að teknu tilliti til framkominna ábendinga í umræðum nefndarinnar varðandi viðbótarskýringarmyndir. Skilmálum verði ekki breytt. Var það samþykkt samhljóða.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa framlagða tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana með hefðbundnum hætti.
Bæjarstjórn samþykkir að hafa opið hús um tillöguna í síðustu viku febrúar og felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að finna heppilegan dag til þess.
Í tengslum við umræðu um lóðir á umræddu svæði hafnarinnar lýsir bæjarstjórn sig reiðubúna að taka frá framtíðarbyggingarlóð/lóðir á hafnarsvæðinu undir starfsemi almannavarnarmiðstöðvar, þar sem slökkvilið, björgunarsveit og mögulega fleiri aðilar gætu sameinast í húsi.
Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að ræða nánar við slökkviliðsstjóra og formann Björgunarsveitarinnar Klakks um málið.
[Viðbót 12feb. Niðurstaða barst 11 febrúar og telur Skl.st. að umhverfismats sé ekki þörf. Niðurstaðan er kæranleg til 11. mars. Ákvörðuninni bætt undir fundinn fyrir bæjarstjórnarfund]
Lögð fram umsögn Grundarfjarðarhafnar dags. 27. janúar sl. um þær umsagnir sem bárust við auglýsingu í umsagnarferli um erindi hafnarinnar varðandi matsskyldu.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar um matsskyldu liggur ekki fyrir, en mun líklega koma í lok vikunnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 275Bókun fundarForseti kynnti að í gær, 11. febrúar, hefði borist bréflega ákvörðun Skipulagsstofnunar í þessu máli. Skipulagsstofnun ákvað að stækkun hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. Niðurstaðan hefur verið birt á vefsíðu Skipulagsstofnunar https://island.is/s/skipulagsstofnun/frett/staekkun-hafnarsvaedis-grundarfjardarhafnar-sunnan-midgards
Spurningin um matsskyldu er í tengslum við yfirstandandi deiliskipulagsgerð vegna stækkunar Grundarfjarðarhafnar með landfyllingu.
Lögð fram til umræðu og afgreiðslu skv. 30. gr. skipulagslaga vinnslutillaga að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039, um Blágrænar ofanvatnslausnir.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 275Dóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta fór yfir tillögu á vinnslustigi að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir vinnslutillöguna fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa vinnslutillögu að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um Blágrænar ofanvatnslausnir, í samræmi við 30. gr. skipulagslaga.
Lögð fram til umræðu og afgreiðslu tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Háubakka, viðbótarlóðir fyrir íbúðarhús við vestanverða Grundargötu, skv. 30. gr. skipulagslaga.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 275Þorkell Máni Þorkelsson mætir til fundar undir þessum lið.
Dóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta fór yfir vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar vegna Háubakka. Tillagan felur í sér að afþreyingarsvæði í landi Hellnafells minnkar og byggingarland fyrir nýjar einbýlishúsalóðir stækkar til vesturs við vestanverða Grundargötu, neðan vegar.
Fram kom að leitað var til umferðarsérfræðings um vegtengingu af Grundargötu inn á nýjar lóðir. Í aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi er miðað við 30 km hámarkshraða sbr. ósk/umsögn Grundarfjarðarbæjar þar um til Vegagerðarinnar.
Vegagerðin var meðal umsagnaraðila við skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingar og fyrirhugaðs deiliskipulags og leggst þar gegn vegtengingum, sé miðað við 50 km hraða á klst. Beðið er eftir staðfestingu Vegagerðarinnar á verkáætlun fyrir endurskoðun á umferðaröryggi/útfærslu Grundargötu í heild sinni, sem er annað verkefni, en mun einnig taka á tengingum við fyrirhugaðar lóðir. Í þeirri verkáætlun sem send var Vegagerðinni í nóvember sl. er gengið út frá 30 km hámarkshraða á Grundargötunni á milli rúlluhliða og við það er miðað núna í allri skipulagsgerð í bænum.
Nánari útfærsla á reitnum verður í deiliskipulagi.
Samþykkt samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 vegna Háubakka, viðbótarlóða fyrir íbúðarhús við vestanverða Grundargötu, skv. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkæðum (JÓK, ÁE, SG, BS, LÁB, SGG), einn sat hjá (GS).
Í framhaldi af umræðu um lausafjármuni á 274. fundi nefndarinnar er lagt fram uppkast að nýrri samþykkt um stöðuleyfi.Skipulags- og umhverfisnefnd - 275GRS þjónustufulltrúi fór yfir drögin og gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við framkomin drög. Spurt var hvort setja ætti sérskilmála um lausafjármuni sem tengjast atvinnustarfsemi í þéttbýli, en drög að öðru leyti samþykkt.
Þjónustufulltrúa skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna endanleg drög sem lögð yrðu fyrir bæjarstjórn ásamt því að gera tillögu að endurskoðaðri gjaldskrá stöðuleyfa.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Tillaga að endurskoðaðri samþykkt um stöðuleyfi er í yfirlestri lögmanns. Bæjarstjórn felur bæjarráði að taka yfirfarna tillögu að yfirlestri loknum til endanlegrar afgreiðslu og auglýsa hana. Ennfremur felur bæjarstjórn bæjarráði að taka til endurskoðunar gjaldskrá fyrir stöðuleyfi og gera tillögu um breytingar á henni.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 275Nanna vakti máls á göngustígakerfi bæjarins og þá sérstaklega göngustíg eða leið meðfram strandlengjunni innan þéttbýlis.
Farið yfir stígakerfið innan þéttbýlis eins og það er sett fram í aðalskipulagi.
Nefndin er sammála um að mikil gæði felist í góðum strandstíg og er nefndin tilbúin til að skoða það betur.