Málsnúmer 2602009

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn - 26. fundur - 10.02.2026

Rætt um verkefni hafnar, skipulags- og lóðarmál á hafnarsvæðinu m.t.t. framtíðarþróunar, nýtingu lóða o.fl.



Til frekari skoðunar.

Gestir

  • Halldór Jónsson hrl., í fjarfundi - mæting: 16:00
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 16:00

Hafnarstjórn - 30. fundur - 05.05.2026

Hafnarstjóri fór yfir stöðu framkvæmda og helstu verkefna og starfsemi hafnarinnar.



Sigurður Valur skipulagsfulltrúi sat undir þeim hluta þessa dagskrárliðar sem fjallaði um lóðamál og gatnagerð, og bókað er undir þessum lið.

Verkið "Grjótvörn við Norðurgarð" (landfylling í "krika") - verkstaða:

Samið var við lægstbjóðanda í útboði verksins, sjá meðfylgjandi frétt. Verkið gengur ágætlega og er á áætlun. Ívið meira af grjóti mun fara í verkið heldur en gert var ráð fyrir. Verklok eru áætluð 1. júní nk. Til verður viðbótarland sem nýtist til að breikka umferðarleiðir, bæði fyrir akandi og gangandi.

Við grjótvörnina nýju, sem færð er utar, mun koma ný flotbryggja og hefur hún verið keypt skv. tilboði Köfunarþjónustunnar til hafnarinnar. Hún kemur til landsins 15. maí nk. Búið er að staðsteypa stólpa fyrir hana, af heimaverktaka, skv. tilboði verks. Landgangur að flotbryggju er einnig smíðaður hér heima skv. tilboði sem aflað var í verkið.

Um leið og útboðsverkinu lýkur, verður farið í að steypa plönin á svæðinu.


Smábátahöfn - framkvæmdir:

Unnið er að útfærslu á auknu öryggi við smábátahöfn við Suðurgarð hvað varðar aðstöðu til olíuafgreiðslu.
Einnig er unnið að því að leggja viðbót við vatnslögn niður að smábátabryggju.
Verið er að yfirfara öryggisbúnað við flotbryggjur til að uppfylla nýjar kröfur.
Verið er að setja tvo nýja bekki á bílaplanið nyrst á smábátahöfn, en áhaldahús/eignaumsjón smíðaði þá úr rekavið fyrir höfnina og verða þeir festir niður á svæðinu.


Aðrar framkvæmdir:

Verið er að færa til annan löndunarkranann á Miðgarði, þann sem var útá enda og verður hann nú staðsettur sömu megin og hinn kraninn, eða við norðurhlið Miðgarðs.

Skipt verður um einn stiga utan á eldri hluta Norðurgarðs.


Lóðamál og gatnagerð á hafnarsvæði, Framnes austan við Nesveg:

Hafnarstjóri (og skipulagsfulltrúi) sagði frá samtali sínu og skipulagsfulltrúa við Olíudreifingu um lóðamál fyrirtækisins á svæðinu. Unnið er að gerð nýrra lóðablaða/merkjalýsinga, í takt við nýtt deiliskipulag svæðisins, m.a. fyrir lóðina Nesveg 4B þar sem olíutankur stendur. Hafnarstjóri sagði frá álitaefnum í tengslum við frágang lóðablaða, en málið er í vinnslu.

Fyrir liggur hönnun á götunni sem liggur sem framlenging á Bergþórugötu og niður fyrir hótel og netaverkstæði. Unnið er að undirbúningi/hönnun í samvinnu við Veitur og Olíudreifingu.

Starfsmannamál:

Þrír sumarstarfsmenn hófu störf 20. apríl og einn til viðbótar kemur um miðjan maí, en auglýst var eftir starfsfólki.


Fjármál og landaður afli:

Samkvæmt tölum hafnarstjóra var landaður afli fiskiskipa fyrstu fjóra mánuði ársins kominn í tæplega 11.110 tonn, en var á sama tíma í fyrra tæp 6.328 tonn.

Hafnarstjóri sagði frá því að staðan væri sú 5. maí að tekjur væru orðnar 73 millj. kr., rekstrarkostnaður 32 millj. kr. og afkoman því 41 millj. kr. Á sama tíma fyrir ári var afkoman um 7 millj.kr.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi og ráðgjafi - mæting: 14:00