Málsnúmer 2603003

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 277. fundur - 09.03.2026

Lögð fram til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi Ölkeldudals.

Um er að ræða einfalda leiðréttingu þar sem tvær byggingarmagnstölur víxluðust milli dálka í skilmálatöflu (lóðir við Ölkelduveg 39-43). Málsmeðferð er því skv. grein 5.8.2 um óverulega breytingu í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.





Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samhljóða breytinguna og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur telur nefndin að ekki sé um nein grenndaráhrif að ræða enda ekki um útlitsbreytingu að ræða og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Ekki er því þörf á að grenndarkynning fari fram í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Gestir

  • Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi Alta, í fjarfundi

Skipulags- og umhverfisnefnd - 282. fundur - 07.10.2026

Óveruleg breyting deiliskipulags Ölkeldudals öðlaðist gildi með auglýsingu sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 19. ágúst 2026 og varðar að gerð er breyting á fjórum reitum í skilmálatöflu í kafla 6.11 á bls. 41 í deiliskipulagsgreinargerðinni, sem er undirkafli kafla 6, Skilmálar á lóðum. Lýsing á Ölkelduvegi 18 og 29 breytist úr parhúsi í raðhús. Breytingin fyrir Ölkelduveg 41 varðar hámarks byggingarmagn fyrir annars vegar sérbýli og hins vegar raðhús við lóðina. Eftir breytinguna er skráð hámarksbyggingarmagn sérbýla 220 m² en hámarksbyggingarmagn fyrir raðhús 180 m². Engar breytingar eru gerðar á uppdrætti deiliskipulagsins, þar eru tölur rétt skráðar og gerðir húsa sýndar rétt. Aðeins er verið að leiðrétta samræmi milli uppdráttar og greinargerðar.
Auglýsing lögð fram og kynnt.
Fylgiskjöl: