Samtal er hafið um möguleika á franskri kvikmyndahátíð í Grundarfirði. Samtalið kom til fyrir tilstilli SSV og hafa franska sendiráðið og forstöðumaður menningar- og markaðsmála haldið því áfram.
Menningarnefnd tekur vel í þessa hugmynd. Rætt var um framkvæmd kvikmyndahátíðar, hvort hún eigi að standa sér eða samtvinnast inn í aðra menningarviðburði s.s. Rökkurdaga. Eins var rætt um að fá Grundapol, vináttufélag Grundarfjarðar og vinabæjarins Paimpol, að borðinu í skipulagningu.
Menningarnefnd felur forstöðumanni markaðs- og menningarmála að taka verkefnið áfram.
Samtal hefur átt sér stað milli franska sendiráðsins og Grundarfjarðarbæjar um að halda franska kvikmyndahátíð. Staða verkefnisins kynnt fyrir menningarnefnd.
Menningarnefnd tekur vel í þá hugmynd að halda franska kvikmyndahátíð í Grundarfirði og leggur til að hún verði haldin um miðjan febrúar.
Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að halda áfram með verkefnið.
Menningarnefnd felur forstöðumanni markaðs- og menningarmála að taka verkefnið áfram.