Lagðir fram ársreikningar samstæðu og sjóða vegna ársins 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og Marinó Mortensen, frá Deloitte, sátu fundinn undir þessum lið. Þeir fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2025.
Allir tóku til máls.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.011 millj. kr., en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.959,1 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu 1.632,3 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.616,8 millj. kr. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 179,5 millj. kr. Fjárhagsáætlun samstæðu með viðauka gerði ráð fyrir 111,9 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Sé litið til A hluta eingöngu, þá er rekstarafkoma A-hluta jákvæð á árinu um 58,8 millj. kr.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 1.659,8 millj. kr. skv. efnahagsreikningi, þar af nam eigið fé A-hluta 1.178,5 millj. kr. Eiginfjárhlutfall var 37,56%, en var 35,01% árið áður. Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins námu 2.163,8 millj. kr., en námu 2.056,6 millj. kr. árið 2024. Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga er 86,14% í samanteknum ársreikningi, en var 91,05% árið 2024. Hjá A-hluta var hlutfallið 84,31%, en var 88,89% á árinu 2024. Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 323,1 millj. kr. Framlegðarhlutfall rekstrar hjá samstæðunni var 18,75% en var 15,81% árið 2024. Handbært fé í árslok var 93,0 millj. kr., en var 61,4 millj. kr. árið áður.
Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Lögð fram endurbætt gögn, frá fyrri umræðu sem fram fór 9. apríl sl. í bæjarstjórn. Um er að ræða leiðrétta framsetningu, en enga breytingu á fjárhæðum.
Síðari umræða um ársreikning 2025. Lagðir fram ársreikningar með smávægilegum leiðréttingum sem gerðar voru milli umræðna og farið var yfir á 654. fundi bæjarráðs.
Jónas Gestur Jónasson lögg. endurskoðandi og Marinó Mortensen frá Deloitte sátu fundinn undir þessum lið.
Þeir kynntu ársreikning Grundarfjarðarbæjar 2025, sem tekinn er til síðari umræðu, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum og ýmsum kennitölum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2025.
Allir tóku til máls.
Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 samþykktur samhljóða.
Samþykkt samhljóða.