310. fundur 09. apríl 2026 kl. 14:00 - 17:41 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Ársreikningur 2025 - fyrri umræða

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Lagðir fram ársreikningar samstæðu og sjóða vegna ársins 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og Marinó Mortensen, frá Deloitte, sátu fundinn undir þessum lið. Þeir fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2025.

Allir tóku til máls.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.011 millj. kr., en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.959,1 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu 1.632,3 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.616,8 millj. kr. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 179,5 millj. kr. Fjárhagsáætlun samstæðu með viðauka gerði ráð fyrir 111,9 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Sé litið til A hluta eingöngu, þá er rekstarafkoma A-hluta jákvæð á árinu um 58,8 millj. kr.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 1.659,8 millj. kr. skv. efnahagsreikningi, þar af nam eigið fé A-hluta 1.178,5 millj. kr. Eiginfjárhlutfall var 37,56%, en var 35,01% árið áður. Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins námu 2.163,8 millj. kr., en námu 2.056,6 millj. kr. árið 2024. Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga er 86,14% í samanteknum ársreikningi, en var 91,05% árið 2024. Hjá A-hluta var hlutfallið 84,31%, en var 88,89% á árinu 2024. Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 323,1 millj. kr. Framlegðarhlutfall rekstrar hjá samstæðunni var 18,75% en var 15,81% árið 2024. Handbært fé í árslok var 93,0 millj. kr., en var 61,4 millj. kr. árið áður.

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Gestir

  • Jónas Gestur Jónasson, lögg. endursk. Deloitte - mæting: 14:00
  • Marinó Mortensen, Deloitte - mæting: 14:00

2.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

3.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti sagði frá því að aðalfundur SSV var haldinn 25. mars sl. Sama dag voru einnig aðalfundir Sorpurðunar Vesturlands, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Símenntunar.

Bæjarstjóri ræddi um möguleika á því að auka samstarf Umhverfisvottunar Snæfellsness og Svæðisgarðsins Snæfellsness.

4.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Enn ræðir bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar um samgöngumál og ástand þjóðvegar 54, Snæfellsnesvegar, þar sem ástandið hefur aldrei verið verra. Á það ekki síst við í næsta nágrenni Grundarfjarðar og víða á Snæfellsnesi.

Fyrir liggur svarbréf svæðisstjóra Vestursvæðis frá 13. mars 2026 um að helstu verkefnin á Snæfellsnesi verði endurbygging á Kaldármelum og uppbygging á Stykkishólmsvegi, auk kafla í yfirlögnum víðsvegar um svæðið. Ekki muni nást að endurbyggja né fræsa fleiri kafla á þessu svæði í sumar.

Bæjarstjórn hefur margsinnis gert athugasemdir við hættulegt ástand þjóðvegarins. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar lýsir enn og aftur yfir þungum áhyggjum af þessari stöðu og síversnandi og hættulegu ástandi þjóðvega á Snæfellsnesi, nú þegar vegir koma enn verr undan vetri en nokkru sinni áður. Hættan sem leiðir af ástandi veganna er algjörlega óviðunandi fyrir notendurna. Á það jafnt við um íbúa, gesti, atvinnubílstjóra og neyðarflutninga. Jarðsig og frostskemmdir hafa gert veginn ósléttan yfirferðar, slitlag er gróft og bútakennt eftir áralangar holufyllingar, vegkantar eru víða brotnir og hafa gefið eftir á löngum köflum, víða eru vegir of mjóir og vatnsagi á vegi er víða mikið vandamál.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar ítrekar fjölmargar fyrri bókanir sínar um ástand þjóðvegar 54, Snæfellsnesvegar og óskar sérstaklega eftir upplýsingum Vegagerðarinnar um hvenær megi vænta varanlegra viðgerða á vegarköflum innan marka sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

5.Bæjarráð - 652

Málsnúmer 2603008FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 652. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 652
  • 5.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-febrúar 2026.
    Bæjarráð - 652 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 8,6% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lagt fram yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur 31.12.2025. Bæjarráð - 652 Farið yfir lista yfir ógreiddar viðskiptakröfur 31.12.2025.
  • Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 3.065.777 kr. Bæjarráð - 652 Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns. Bæjarráð samþykkir afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 3.065.777 kr. auk vaxta.

    Samþykkt samhljóða.
  • Á síðasta fundi bæjarráðs var lögð fram tillaga slökkviliðsstjóra um að farið verði að skoða valkosti og undirbúa kaup nýrrar slökkvibifreiðar. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að skoða nánar valkosti um endurnýjun slökkvibifreiðar og leggja tillögu fyrir bæjarráð í lok mars.
    Bæjarráð - 652 Slökkviliðsstjóri og bæjarstjóri hafa farið yfir málið.

    Lagt er til að hefja undirbúning að kaupum á slökkvibifreið af minni gerðinni, 4x4, með yfirbyggingu og "Kapskerfi", þannig að bíllinn geti dælt bæði froðu og vatni. Bifreiðin myndi leysa af hólmi Iveco tankbifreið slökkviliðsins, sem er árgerð 1985, sem þörf er á að endurnýja.

    Í tillögu slökkviliðsstjóra sem rædd var á fyrri fundi bæjarráðs kom fram að til viðbótar yrði keypt kerra undir lausa dælu og vatnslaug.

    Ef krafist yrði innborgunar á þessu ári yrði gerður viðauki við fjárhagsáætlun ársins.

    Bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra falinn áframhaldandi undirbúningur þessara kaupa, m.a. að vinna nánari skilgreiningu og skilmála kaupa, sem og gerð tillögu um aukabúnað.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um að hefja undirbúning að kaupum á slökkvibifreið.

    Samþykkt samhljóða.
  • 5.6 2601004 Framkvæmdir 2026
    Yfirferð framvindu framkvæmdaverkefna.
    Bæjarráð - 652 Bæjarstjóri sagði frá því að útboð á klæðningu íþróttahúss sé að fara af stað, en um tveggja ára verkefni er að ræða.

    Unnið hefur verið að stígamálum og skoðaðir valkostir á stígum og reiðveg að Kirkjufellsfossi, en mikill kostnaðarmunur er á þeim leiðum sem ræddar hafa verið. Sl. haust var sótt um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að vinna að stígagerð að Kirkjufellsfossi. Vegagerðin hefur gefið loforð um stuðning við stígagerð, á móti kostnaði bæjarins, en fyrir liggur að kostnaður er þó mun meiri. Málið er í vinnslu.

    Undirbúningur framkvæmda á skólalóðum leik- og grunnskóla er í gangi, sem og við leiksvæði í Þríhyrningi, á Sæbóli og á Hjaltalínsholti.

    Þá verður unnið að því að bæta umferðaröryggi í kringum grunnskólann.

    Bæjarstjóri sagði jafnframt frá því að nýr starfsmaður í tæknimálum muni hefja störf á morgun.

  • Lögð fram gögn um rafmagnsnotkun og kostnað.


    Bæjarráð - 652 Bæjarstjóri sagði frá lækkun kyndingarkostnaðar á árinu 2025.

    Kyndingarkostnaður skóla- og íþróttamannvirkja (með olíu) var allt að ca. 30 milljónir á ári (árin 2022-2024) eftir miklar olíuverðshækkanir, og það þrátt fyrir að sundlaugin hafi ekki verið kynt 5-6 mánuði yfir vetrartímann.

    Árið 2025 var kyndingarkostnaður hins vegar rétt rúmar 13 milljónir króna, sem er um 44% af kostnaði áranna á undan. Samt var rafmagnsnotkun ársins mun meiri en reiknað er með og taka þarf með í reikninginn að sundlaugin var opin frá apríl og út árið og er enn opin nú í lok mars. Með viðbótarorku inná kerfið í janúar sl., og mögulega frekari ráðstöfunum, ætti rafmagnsreikningurinn að lækka enn frekar árið 2026.

    Fyrir utan það að framkvæmdin sé þegar farin að skila lægri orkukostnaði, þá fela orkuskiptin í sér mun umhverfisvænni húshitun, enga kolefnislosun og ekkert sót. Auk lengri opnunartíma sundlaugarinnar.

    Bæjarstjóri sagði frá því að olíutankurinn stóri, í sundlaugargarði, hafi verið fjarlægður. Ætlunin er að hafa olíukyndingu skóla- og íþróttamannvirkja (ketilinn gamla) sem varaafl. Ekki verður settur upp nýr olíutankur í sundlaugargarði, en varatankur hafður á öðrum stað í bænum, þannig að auðvelt verði að flytja hann á staðinn, ef nauðsyn ber til að grípa til varaaflsins.

  • Lögð fram ný gögn í málinu, eftir samskipti við fulltrúa verkefnisins að undanförnu. Haldnir hafa verið fundir til viðræðna um málið.

    Halldór Jónsson hrl., lögmaður bæjarins, var viðstaddur fundinn undir þessum lið, en hann hefur ásamt Helga S. Gunnarssyni verið bæjarstjórn til ráðgjafar í málinu. Öðrum bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja fundinn undir þessum lið.

    Bæjarráð - 652 Bæjarráð ræddi málið við lögmanninn. Bæjarstjóra falið umboð til að vinna áfram að málinu og undirbúa gerð viljayfirlýsingar á þeim forsendum sem ræddar voru á fundinum.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Málið er sérstakur dagskrárliður þessa fundar.
  • Farið yfir stöðu máls.

    Halldór Jónsson hrl., lögmaður bæjarins, var viðstaddur fundinn undir þessum lið, en hann hefur ásamt Helga S. Gunnarssyni verið bæjarstjórn til ráðgjafar í málinu.

    Öðrum bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja fundinn undir þessum lið.

    Bæjarráð - 652 Eins og áður hefur komið fram, var aðalskipulagi Framness breytt 2023 til undirbúnings uppbyggingar fyrir verslun og þjónustu á komandi árum. Áform sem uppi höfðu verið um að deiliskipuleggja svæðið voru lögð til hliðar, þar sem það þótti eðlilegri forgangsröðun að leita fyrst að fjárfestum til að vinna að uppbyggingu, og fara í deiliskipulagsvinnu með slíkum aðilum þegar þróunarvinna væri farin af stað. Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn höfðu skilgreint grunnforsendur bæjarins við uppbyggingu svæðisins og frekari undirbúningsvinna var í gangi þegar upplýst var um áhugasaman fjárfesti undir lok síðasta árs, en á öðrum forsendum en ráðgert hafði verið. Talið var eðlilegt að hlusta á skipulagsleg sjónarmið þessa aðila áður en farið væri í frekara samtal um svæðið. Viðræður voru í gangi en nýverið var upplýst um að sá aðili hefði tilkynnt að hann ætti ekki kost á að halda þeim áfram.

    Farið var yfir stöðuna með lögmanninum.

    Bæjarráð áréttar fyrri stefnumörkun skipulagsnefndar og bæjarstjórnar um skipulagsforsendur svæðis, á grunni aðalskipulags, og um verklag við uppbyggingu. Ennfremur áréttar bæjarráð að í gildi er áfram umboð, sem samþykkt var á 301. fundi bæjarstjórnar 11. sept. 2025, þ.e. til Halldórs Jónssonar hrl. og Juris slf. og til Helga S. Gunnarssonar, ráðgjafa, vegna undirbúnings uppbyggingar á Framnesi.

  • Rætt hafði verið við fulltrúa Hesteigendafélagsins, um að afmarka svæði kringum hesthúsahverfi og á reiðveginum, þar sem bannað yrði að fljúga með dróna. Það er Samgöngustofa sem þarf að staðfesta slíkt bann, en afmarkað svæði yrði þá algjörlega lokað fyrir drónaflugi.

    Lögð fram tillaga að svæði sem drónabann gæti náð til. Tillagan er í umsögn hjá Hesteigendafélaginu og verður einnig lögð fyrir skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag, 26. mars.

    Bæjarráð - 652 Bæjarráð tekur vel í framlagða tillögu og felur skipulagsfulltrúa í samráði við forstöðumann menningar- og markaðsmála að vinna málið áfram með hagaðilum.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu um mörk drónabanns.

    Samþykkt sérstaklega af hálfu bæjarstjórnar hvað varðar það land sem er í eigu bæjarins.

    Samþykkt með fyrirvara um endanlegt samþykki Hesteigendafélagsins og landeigenda Kirkjufells.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram erindi Snæfellsbæjar um að stofnuð verði sameiginleg velferðarnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Einnig lagður fram tölvupóstur forstöðumanns FSS, frá 12. mars 2026, með frekari skýringum um málið.
    Bæjarráð - 652 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tekið verði vel í erindið.

    Bæjarráð leggur til að óskað verði eftir tillögu að erindisbréfi fyrir nefndina, þar sem hlutverk og verkefni nefndarinnar verði skýrð.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs og óskar eftir drögum að erindisbréfi.
  • Lögð fram beiðni verkefnastjóra verkefnisins "Sterkari út í lífið" um styrk til starfsemi sinnar.
    Bæjarráð - 652 Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkbeiðninni.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram beiðni Valdimars Núma Hjaltasonar um styrk vegna Kraftakeppninnar Fjallkonan sem haldin verður næsta sumar á Snæfellsnesi.

    Bæjarráð - 652 Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkbeiðninni að sinni.

    Samþykkt samhljóða.

  • Kauptilboð hefur borist í íbúð fyrir eldri borgara að Hrannarstíg 34.

    Íbúðin var fyrst auglýst til sölu 20. nóvember 2025 og gefinn kostur á að bjóða í íbúðina skv. skilmálum auglýsingar og innan tilgreinds tilboðsfrests, sem var til 5. desember sl. Þar sem ekkert tilboð barst innan þess frests var íbúðin auglýst til sölu með almennum skilmálum og ótilgreindum tilboðsfresti þann 7. janúar 2026.

    Bæjarráð - 652 Kauptilboðið í íbúðina hljóðar upp á 48 millj. kr.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum í samræmi við skilmála og kvaðir sem um eignina gilda.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs um töku tilboðs í eignina.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagður fram til kynningar fánasamningur 2026-2027 sem gerður hefur verið við Golfklúbbinn Vestarr.
    Bæjarráð - 652
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Skíðadeildar UMFG vegna ársins 2025.
    Bæjarráð - 652
  • Lögð fram til kynningar skýrsla Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. um vöktun umhverfisþátta við aflagðan urðunarstað í landi Hrafnkelsstaða í Kolgrafafirði 2025. Skýrslunni og tilheyrandi upplýsingum hefur verið skilað til Umhverfisstofnunar, í samræmi við fyrirmæli um frágang og vöktun staðarins, sem gefin voru út 5. desember 2012.

    Bæjarráð - 652
  • Lagður fram til kynningar ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vegna ársins 2025. Reikningurinn var lagður fram og samþykktur á aðalfundi SSV í gær, 25. mars.

    Bæjarráð - 652
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur heilbrigðisfulltrúa Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF), um það að frumvarp umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga muni fela í sér flóknari stjórnsýslu.
    Bæjarráð - 652 Bókun fundar Bæjarstjórn ítrekar fyrri áhyggjur vegna niðurlagningar heilbrigðiseftirlita á landsbyggðinni.
  • Lögð fram til kynningar skýrsla SSV um úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2026.
    Bæjarráð - 652
  • Lögð fram til kynningar fundargerð 201. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 23. mars sl.
    Bæjarráð - 652
  • Lögð fram til kynningar dagskrá aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV) sem haldinn var 25. mars sl., ásamt ársreikningi HeV fyrir árið 2025.
    Bæjarráð - 652
  • Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga um hallarekstur á skólaakstri á haustönn 2025 ásamt reikningi. Hlutur Grundarfjarðarbæjar er 1.895.794 kr. vegna annarinnar.
    Bæjarráð - 652
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur SSV um áhugavert verkefni sem Nýheimar á Hornafirði hafa verið að vinna að undanfarin tvö ár, ásamt handbók um verkefnið HeimaHöfn.
    Bæjarráð - 652
  • Lagt fram til kynningar bréf Háskóla Íslands um fagháskólanám í leikskólafræði sem verður í boði haustið 2026. Um er að ræða fjögurra anna brúarnám með vinnu.
    Bæjarráð - 652

6.Skólanefnd - 189

Málsnúmer 2603007FVakta málsnúmer

Til máls tóku JÓK og LÁB.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 189. fundar skólanefndar.
  • Lögð fyrir dagskrá og verkefni þessa fundar skólanefndar, skv. starfsáætlun nefndarinnar fyrir þetta skólaár.


    Skólanefnd - 189
  • Lagðir fram minnispunktar leikskólastjóra og tillaga að skóladagatali fyrir komandi skólaár 2026-2027.
    Skólanefnd - 189 Lagðir fram minnispunktar leikskólastjóra, m.a. um barngildi og mönnun.

    Rætt var um þá breytingu sem verður við það að fimm ára börn verði frá og með komandi skólaári nemendur Sólvalla. Stjórnendur undirbúa nú áætlun um hvernig starfinu verði háttað, að teknu tilliti til þeirrar breytingar að fimm ára börnin verði áfram á Sólvöllum.

    Leikskólastjóri sagði frá því að unnið sé (og verði) með aukið flæði milli deilda leikskólans, þannig að það verði ekki eins skörp skil í starfinu hvað varðar aldur, heldur geti átt sér stað samstarf milli deilda/árganga í meira mæli en verið hefur.

    Fram kom að samskipti ("brúum bilið") við grunnskóla hafi í raun verið á milli fimm ára deildarinnar Eldhamra og grunnskóla, en að nú muni leikskólinn taka upp samstarfið við grunnskólann og skipuleggja. Það sé tilhlökkunarefni að fá aukið samstarf við grunnskóla, en í löggjöf um skólastigin sé mælt fyrir um það að samstarf skuli vera um að "brúa bil" milli leik- og grunnskóla.

    Leikskólastjóri sagði frá því að í vetur hafi verið gott samstarf með því að miðstig grunnskólans hefur verið í valáfanga, sem felst í því að koma inní leikskóla og eiga samverustundir. Nú síðast sýndi miðstigið leikrit fyrir leikskólabörn á Sólvöllum og tókst það vel til.

    Rætt um tillögu að skóladagatali leikskólans fyrir komandi skólaár. Rætt um samræmingu við dagatal grunnskóla og tónlistarskóla. Gerðar smávægilegar breytingar og verður endurbætt dagatal sett undir fundinn.
    Skólanefnd samþykkir framlagða tillögu að skóladagatali Leikskólans Sólvalla.

    Leikskólastjóra þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar, sem og öðrum fulltrúum.

  • Fram kom að nk. miðvikudag, 25. mars, býður skólanefnd foreldrum allra leikskólabarna til samtals um þá ákvörðun bæjarstjórnar, að tillögu skólanefndar, að sameina starf á leikskólastigi, frá og með komandi skólaári. Tilgangur samtalsins er að heyra í foreldrum, um það sem þeim finnst mikilvægt að passað sé upp á við þessa breytingu - eins og sagði í fundarboð til þeirra í síðustu viku.
    Skólanefnd - 189
  • Lögð fram tillaga um skóladagatal grunnskólans fyrir skólaárið 2026-2027.

    Einnig lögð fram gögn frá skólastjóra um kennslumagn og mönnun, og um stöðu viðmiða gæðaráðs skólans í mars 2026.
    Skólanefnd - 189 Rætt um framlögð gögn.

    Skóladagatal rætt og farið yfir samræmi við önnur skóladagatöl.
    Með fyrirvara um minniháttar lagfæringar samþykkir skólanefnd framlagða tillögu að skóladagatali.
  • Lögð fram tillaga að skóladagatali Tónlistarskólans skólaárið 2026-2027.
    Skólanefnd - 189 Linda María sagði frá starfsemi tónlistarskólans:

    Innritun nemenda fer fram eftir skólaslit í vor, og stendur í ca. 2 vikur. Allir nemendur grunnskólans fá kynningu um þær greinar sem eru í boði við tónlistarskólann. Innritun er svo aftur í ágúst, þegar ljóst er hvað enn er laust af tímum hjá kennurum.

    Nú er verið að undirbúa þátttöku skólans "Nótunni", uppskeruhátíð tónlistarskólanna, sem haldin verður á Patreksfirði, fyrir Vesturland og Vestfirði í vor. Sex nemendur fara frá okkur, auk þess Linda María og tveir foreldrar.

    Nemendatónleikar verða í maí og skólinn verður með tónlistaratriði á 1. maí hátíð, eins og hefðbundið er orðið.

    Skóladagatal komandi skólaárs rætt og samþykkt, fyrirvari gerður um Svæðisþing tónlistarskólanna (Vesturland), sem er enn ódagsett.

  • Aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, Nanna Vilborg, hefur í samstarfi við íþrótta- og tómstundafulltrúa, Hinrik gert úttekt á íþróttahúsinu og sundlauginni með það í huga að auðvelda aðgengi, og stefna að því að einstaklingur í hjólastól gæti komist klakklaust í sund eða á íþróttaviðburð í húsinu.

    Gerð var samantekt (sjá fylgiskjal) sem send var á Berg Þorra Benjamínsson verkefnastjóra hjá ÖBÍ-Réttindasamtök ÖBÍ til skoðunar.
    Skólanefnd - 189 Rætt um úttektina, sem snýr að íþróttahúsi og aðstöðu nemenda grunnskólans, og er þar af leiðandi á borði skólanefndar að skoða.

    Skólanefnd fagnar þessari úttekt og lýsir ánægju með hana, sem grunn að aðgerðum í bættu aðgengi.
  • Lagt fram til kynningar bréf Háskóla Íslands um fagháskólanám í leikskólafræði.
    Skólanefnd - 189

7.Menningarnefnd - 54

Málsnúmer 2603005FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 54. fundar menningarnefndar.
  • Bæjarstjórn samþykkti samhljóða, í október sl., framlagða tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), auk fulltrúa bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu.

    Óskað er eftir að menningarnefnd tilnefni aðila til þess að sitja í þessum samráðshóp.
    Menningarnefnd - 54 Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kom inn á fundinn undir þessum lið. Hún fór yfir verekefnið OP-5 Útivistarkaginn, tilgang þess og markmið.

    Menningarnefnd tilnefnir Mörtu Magnúsdóttur í samráðshóp fyrir OP-5 útivistarkagann.

    Samþykkt samhljóða.
  • Vinir Bókasafnsins - Bæjarstjórn samþykkti í desember sl., við frágang fjárhagsáætlunar 2026, fjárveitingu uppá 400.000 kr. í samræmi við minnisblað og óskir frá menningarnefnd. Sjá fylgiskjal.

    Samráðsfundur menningarfulltrúa sveitarfélaganna á Vesturlandi var haldinn 4. mars 2026 í Borgarnesi.
    Menningarnefnd - 54 Menningarnefnd fagnar þessari fjárveitingu í samræmi við óskir nefndarinnar og telur hana geta stutt við skemmtilega viðburði sem styrkja starf og hlutverk bókasafnsins. Ákveðið hefur verið að fyrsti viðburður verði haldinn í apríl. Marta Magnúsdóttir og Rakel Birgisdóttir hafa tekið að sér skipulagningu þess viðburðar. Hugsunin er að sýna í verki hvernig hægt er að nýta þennan sjóð.

    Rætt var um heitið “Vinir bókasafnsins" og ákveðið var að breyta því í “Gestir Bókasafnsins". Gestur er fallegt orð og vísar það til þess sem er velkominn á ákveðinn stað. Áhugasömum gestum/velunnurum bókasafnsins býðst að halda viðburð(i) í bókasafninu/Sögumiðstöð, innan ákveðins ramma, og sá sem heldur viðburð verður "gestgjafi".

    Í samræmi við umræður fundarins felur menningarnefnd forstöðumanni markaðs- og menningarmála að gera drög að einföldum viðmiðum um hvernig fjármunum verði varið í verkefni skv. þessari fjárveitingu, til leiðbeiningar fyrir nefndina og gestgjafa.

    Einnig var rætt um hvernig viðburðir verða auglýstir. Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir þá miðla sem standa til boða, þ.e. Facebook-síða Bókasafns Grundarfjarðar, Instagram "Menning Grundarfjörður", viðburðadagatal á vef Grundarfjarðarbæjar. Verður það samstarf viðburðahaldara og forstöðumanns menningar- og markaðsmála að meta í hvert skipti.

    Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) boðuðu til samráðsfundar menningarfulltrúa á Vesturlandi þann 4. mars síðastliðinn. Tilgangur fundarins var að auka samráð og samstarf menningarfulltrúa á Vesturlandi. Pálmi forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar á fundinn.
  • Samtal er hafið um möguleika á franskri kvikmyndahátíð í Grundarfirði. Samtalið kom til fyrir tilstilli SSV og hafa franska sendiráðið og forstöðumaður menningar- og markaðsmála haldið því áfram.
    Menningarnefnd - 54 Menningarnefnd tekur vel í þessa hugmynd. Rætt var um framkvæmd kvikmyndahátíðar, hvort hún eigi að standa sér eða samtvinnast inn í aðra menningarviðburði s.s. Rökkurdaga. Eins var rætt um að fá Grundapol, vináttufélag Grundarfjarðar og vinabæjarins Paimpol, að borðinu í skipulagningu.

    Menningarnefnd felur forstöðumanni markaðs- og menningarmála að taka verkefnið áfram.
  • Grundarfjarðarbær sótti um styrk í Barnamenningarsjóð sem heyrir undir Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís). Umsókn lögð fram til kynningar.

    Menningarnefnd - 54 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Barnamenningarsjóð sem hann gekk frá f.h. Grundarfjarðarbæjar, í samráði við þjónustumiðstöð bæjarins og grunnskóla, og snýst um listsköpun barna/ungmenna í almenningsrýmum (opnum svæðum) bæjarins.
  • Grundarfjarðarbær sótti um styrk í Bókasafnssjóð sem heyrir undir Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís). Umsókn lögð fram til kynningar.
    Menningarnefnd - 54 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Bókasafnssjóð Rannsóknarmiðstöðvar Íslands.

    Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Bókasafnssjóð sem hann gekk frá f.h. Grundarfjarðarbæjar, í samráði við starfsmann bókasafns, og snýst hún um að hvetja til lesturs og kveikja áhuga barna/ungmenna á raunvísindum, jarðfræði og sögu Grundarfjarðar. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Leikskólann Sólvelli, þar sem þemað hverju sinni verður tengt tímalínu sem unnið er með í leikskólanum.

  • Farið yfir stöðuna á vinnu við undirbúning almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst 2026.
    Menningarnefnd - 54 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá þeirri vinnu sem átt hefur sér stað við undirbúning ýmiss konar vegna almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst 2026.

    Samstarf er á Snæfellsnesi og Vesturlandi um málið.

8.Íþrótta- og tómstundanefnd - 116

Málsnúmer 2603006FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 116. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
  • Bæjarstjórn samþykkti í október sl. tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu.

    Búið er að tilnefna fulltrúa allra í hópinn, nema íþrótta- og tómstundanefndar.
    Óskað er eftir að íþrótta- og tómstundanefnd tilnefni fulltrúa í samráðshópinn.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Íþrótta- og tómstundanefnd tilnefnir Ragnheiði Dröfn Benidiktsdóttur sem sinn aðila í samráðshópinn.
  • Farið yfir stígamál á íþróttasvæðinu í Grundarfirði í samvinnu með Nönnu Vilborgu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Íþrótta- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem hefur verið lögð í undirbúning að stígagerð á íþróttasvæðinu. Farið yfir fleiri hugmyndir fyrir stíga og uppsetningar á mönum á íþróttasvæðinu.
  • Umræða um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Eden. Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að breyting verði gerð á opnunartíma Eden. Nefndin leggur til að opnunartímar verði færðir um 30 mínútur fyrr en nú er, til að hann falli betur að útivistartíma barna. Opnunartími Eden á kvöldin er nú frá kl. 20:00 - 22:00 en útivistartími þeirra barna sem stunda Eden má vera lengst til kl. 22:00 samkvæmt útivistarreglum í barnaverndarlögum. Með þessu er líka verið að tryggja að börn fái nægan svefn, en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur.

    Nefndin leggur til að félagsmiðstöðin Eden bjóði upp á starf fyrir fleiri árganga en gert er í dag, þ.e. að 5. og 6. bekkur fái að taka þátt í starfsemi Eden, með svipuðum hætti og tíðkast í okkar nágrannasveitarfélögum.

    Nefndin hvetur bæjarstjórn til að huga að sér húsnæði/rými fyrir félagsmiðstöðina svo starfsemin geti haldið áfram að dafna án takmarkana.
    Bókun fundar Tillaga íþrótta- og tómstundanefndar um að boðið verði uppá starf fyrir fleiri árganga, þ.e. að 5. og 6. bekkur fái að taka þátt í starfsemi Eden, er samþykkt samhljóða og taki gildi frá hausti 2026.

    Í fundargerðinni hvetur nefndin bæjarstjórn til að huga að sér húsnæði eða rými fyrir félagsmiðstöð.

    Allir tóku til máls.

    Bæjarstjórn felur bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa, í samráði við íþrótta- og tómstundanefnd, að skoða valkosti hvað varðar rými fyrir félagsmiðstöð, í samvinnu við hagaðila, og leggja fyrir næsta bæjarráðsfund.

    Samþykkt samhljóða.
  • Tillaga að endurskoðuðum umgengnisreglum fyrir íþróttamiðstöð Grundarfjarðar lagðar fram.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Nýjar umgengnisreglur fyrir íþróttamiðstöðina lagðar fram og samþykkti nefndin þær samhljóða.
  • Tillaga um breytingar á reglum um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar.

    Í 2. grein reglnanna kemur fram að "Skilyrði er að viðkomandi hafi lögheimili í Grundarfjarðarbæ og sé á fimmtánda aldursári." Lagðar eru til breytingar á orðalagi hvað varðar aldursmörk.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Lagt er til að bætt verði við 2. grein "... og sé á fimmtánda aldursári eða eldri."

    Samþykkt samhjóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu nefndarinnar.
  • Lögð fram til kynningar drög að samstarfssamningi Grundarfjarðarbæjar við UMFG, en íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við fulltrúa félagsins um málið.

    Einnig lagður fram listi yfir verkefni sem formaður UMFG hefur sinnt og óskar UMFG eftir stuðningi bæjarins til að ráða framkvæmdastjóra félagsins í 50% stöðu.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 116 Íþrótta- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með drög að samstarfssamningi. Nefndin tekur undir það með stjórn UMFG að þörf sé á framkvæmdarstjóra og vonast eftir að bæjarstjórn taki vel í þá beiðni UMFG.

9.Skipulags- og umhverfisnefnd - 278

Málsnúmer 2603009FVakta málsnúmer

Til máls tóku JÓK og BS.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 278. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Umræðum haldið áfram um gerð nýrrar tillögu að breyttu deiliskipulagi.

    Hafnarstjórn og bæjarfulltrúum var einnig boðið að sitja þennan dagskrárlið fundarins.

    Til umræðu eru deiliskipulagsuppdráttur og skipulagsgreinargerð sem skipulagsráðgjafar hafa tekið saman úr umræðum síðustu funda í vinnu við mótun tillögunnar. Skjölin eru lögð fram til umræðu en eru tilbúin til auglýsingar sé það niðurstaða nefndarinnar að framkomin tillaga endurspegli með fullnægjandi hætti sjónarmið sem fram hafa komið á undangengum fundum skipulags- og umhverfisnefndar þar sem hafnarstjórn og bæjarstjórnarfulltrúar hafa jafnframt setið fundina.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Farið var yfir deiliskipulagstillögu sem skipulagsráðgjafar hafa tekið saman úr þeim umræðum sem átt hafa sér stað um málið á síðustu fundum nefndarinnar, hafnarstjórnar og fl.

    Á fundum bæjarráðs 26. febrúar, hafnarstjórnar 3. mars og skipulags- og umhverfisnefndar 9. mars sl. var samþykkt að taka frá lóð (Íshúsgata 16) við hlið fiskvinnslu SC hf., fyrir björgunarmiðstöð (slökkvilið, björgunarsveit, fl.) og var það staðfest af bæjarstjórn 12. mars sl.

    Helstu breytingar í framlögðum drögum (vinnuskjali), frá þeirri tillögu sem auglýst var 17. febrúar en afturkölluð 26. febrúar sl., eru eftirfarandi:

    - Landfylling minnkar um 11.600 fermetra
    - Settir hafa verið sérskilmálar um útlit og gerð húsa á svæði næst Suðurgarði. Með því er leitast við að tryggja gott útlit á þeim húsum sem verða aðkoma bæjarins. Athygli er vakin á því að þessir skilmálar eiga einnig við um lóð á vesturbakka Gilóss.
    - Landfylling minnkuð um 11.600 fm, eða um rúm 22% frá fyrri tillögu
    - Lóðum á landfyllingu næst sjó er þar með fækkað um fimm
    - Lóðir voru einnig minnkaðar og fjölgar þannig aftur á móti; lóð Íshússvegar 2-4 var skipt upp í tvær og lóðum milli Íshússvegar og Grundargötu fjölgar um eina
    - Alls fækkar lóðum úr 28 í 25
    - Lóð nr. 16 ætluð slökkviliði og björgunarsveit (stærð getur breyst)
    - Núgildandi deiliskipulag útskýrt betur
    - Nánari skilmálar um hönnun bygginga, meðal annars m.t.t. þakforms
    - Áréttaðir skilmálar um góða ásýnd á lóðum
    - Almenningsrými skilgreind nánar

    Margir fundarmanna lýsa yfir ánægju með tillöguna í þessari mynd.

    Í umræðum nefndarinnar er sérstaklega rætt um lögun landfyllingar, en þessi tillaga felur í sér að horn myndast á grjótvörn við Íshúsveg 7. Hafnarstjóri segir ölduhornsmat ekki hafa farið fram og ekki sé búið að ræða þessa útfærslu við Vegagerðina. Hann telur að hún muni taka einhverjum breytingum þegar að því kemur. Spurt er hvort rétt sé að stækka landfyllingu lítillega frá núverandi tillögu og vera með autt svæði sem myndi nýtast sem torgsvæði, en varað er við kostnaði við það, einkum vegna frágangs yfirborðs. Samhliða því er rætt um göngustígagerð um svæðið og göngustígagerð út af því og inn á aðra bæjarhluta.

    Rætt er um hámarkshæð húsa, sem er sjö metrar. Eftir umræður er það niðurstaðan að halda sig við þá hæð. Ítrekað er að ekki er stefnt að því að þetta verði hæð húsa og að ekki sé líklegt þau verði almennt í þeirri hæð, en að þetta sé mesta leyfða hæð og rétt sé að hafa möguleikann fyrir hendi.

    Rætt um framhald skipulagsferlis, verði samþykkt að auglýsa tillöguna í núverandi mynd skv. 41. gr. skipulagslaga. Þá tekur við 6 vikna auglýsingatími og frestur til umsagna og athugasemda. Að umsagnarferli loknu kemur tillagan aftur til meðferðar og þá verður hægt að gera á henni minniháttar breytingar m.t.t. þeirra umsagna sem berast. Sé ekki um verulegar breytingar að ræða getur bæjarstjórn samþykkt nýtt deiliskipulag, en verði gerði meiriháttar breytingar þarf að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu. Þannig verði hægt að gera breytingar á tillögunni og telji skipulags- og umhverfisnefnd að loknu umsagnarferli að gera þurfi umfangsmeiri breytingar hefur hún kost á að gera það og auglýsa nýja tillögu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framangreindar breytingar sem gerðar hafa verið í samræmi við vinnu nefndarinnar, hafnarstjórnar, bæjarfulltrúa o.fl.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagða tillögu til auglýsingar og leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa framlagða endurskoðaða tillögu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Á 277. fundi nefndarinnar 9. mars sl. var samþykkt að auglýsa aðalskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun á íbúðarreit ÍB-4, en minnkun á svæðinu AF-1.

    Á þeim fundi var ennfremur rætt um valkosti við gerð deiliskipulags á svæðinu, hvað varðar fjölda og stærð lóða, húsagerð, aðkomu o.fl.

    Lögð fram til auglýsingar tillaga að deiliskipulagi fyrir lóðir á umræddu svæði við vestanverða Grundargötu (Háubakkar) til afgreiðslu nefndarinnar, með hliðsjón af umræðum nefndarinnar um valkosti á 277. fundi.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Háubakka, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010, með fyrirvara um yfirferð Skipulagsstofnunar á Aðalskipulagi Háubakka.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa framlagða deiliskipulagstillögu fyrir Háubakka, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010, þegar athugun Skipulagsstofnunar er lokið á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar vegna Háubakka.
  • Fyrirspurn berst frá fulltrúa fjárfesta sem íhuga að gera tilboð í Skerðingsstaði. Fyrir liggur staðfesting landeiganda sem heimilar að tekin sé afstaða til fyrirspurnarinnar. Spurt er um afstöðu bæjarins til þess að í stað 5.500 m2 hótelbyggingar komi á þann byggingarreit sex smáhýsi undir gistingu, smáhýsi fyrir sána auk setlaugar fyrir allt að 10 manns. Áfram sé gert ráð fyrir smáhýsum á austari byggingarreit og fyrirhuguð landnot gera því ráð fyrir alls 11-13 smáhýsum fyrir gistingu og aðra tengda aðstöðu.

    Fyrirspyrjandi vonast eftir hraðri afgreiðslu og að geta hafið framkvæmdir í ár, ef af verður.

    Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til framangreindra áforma um breytingar; um hvort þörf sé á breytingu deiliskipulags og hvernig fari þá með breytingu deiliskipulags.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur fyrir sitt leyti jákvætt í erindið og þær breytingar sem það innifelur. Þar sem hugmyndir fyrirspyrjanda gera ráð fyrir umtalsverðri minnkun byggingarmagns og breyttri húsagerð telur nefndin að breyta þurfi deiliskipulagi Skerðingsstaða. Skipulagsfulltrúa er falið að leiðbeina aðilum um það ferli.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og tekur jákvætt í þær breytingar sem fyrirspurnin gengur út á.
  • Gerð er tillaga um að breyta lítillega (gera óverulega deiliskipulagsbreytingu) lóðarmörkum á milli Nesvegar 4B (olíutankur bak við hótelið) og Nesvegar 4. Sjá teikningu.

    Lagt er til að nefndin feli skipulagsfulltrúa að vinna tillögu um ný lóðarmörk fyrir lóðina Nesveg 4B og að auglýsa þau.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu um breytt lóðarmörk skv. þessu og að auglýsa þau sem óverulega breytingu deiliskipulags á Framnesi austan við Nesveg.

    Nefndin telur engin grenndaráhrif vera af breytingunni og að skipulagsfulltrúi geti fullafgreitt málið í samræmi við 2. gr. d. í Viðauka II í Samþykkt um stjórnun Grundarfjarðarbæjar.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Til skipulags- og byggingarsviðs hefur leitað eigandi fasteigna við Grundargötu þar sem inngangurinn er frá Lengju, og óskar viðkomandi eftir því að heimilisfang á viðkomandi fasteignir verði skráð við Lengju.

    Í leiðbeiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er almennt mælst til þess að heimilisföng séu í þessum tilvikum sett við þá götu sem inngangur er frá, m.a. til að tryggja sem stystan viðbragðstíma fyrir neyðarbíla.

    Í Staðfangaskrá HMS er hægt að skrá mörg staðföng á eina fasteign, en aðeins eitt þeirra er aðalstaðfang/heimilisfang. Frá árinu 2016 er þinglýst á fasteignanúmer frekar en heimilisföng. Það er alfarið ákvörðun sveitarfélags hvar aðalstaðfang er valið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að sett verði húsnúmer við Lengju í staðfangaskrá þar sem inngangar í hús eru úr götunni. Skipulagsfulltrúa falið að skrá viðbótarstaðföng í staðfangaskrá á þær fasteignir þar sem inngangur er frá Lengju. Hann fær ennfremur umboð til að gera nýju staðföngin að aðalstaðfangi þannig að heimilisfangið verði þá við Lengju. Hafa skal samráð við eigendur viðkomandi fasteigna áður en aðalstaðfangi er breytt og ennfremur tryggt að íbúar séu upplýstir um breytinguna. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til kynningar tillaga um drónabann í hesthúsahverfi og yfir reiðvegi frá hesthúsahverfi til Kirkjufellsfoss. Málið var áður til umræðu á 270. fundi nefndarinnar og á samráðsfundi með Hesteigendafélagi Grundarfjarðar í júlí sl. Félagið er hlynnt slíku banni, en nokkur truflun hefur verið af drónaflugi frá ferðamönnum.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í þessari og leggur til að bæjarstjórn samþykki hana.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Sjá nánar afgreiðslu fundargerðar bæjarráðs hér framar.
  • Skipulagsfulltrúi gaf út í vikunni framkvæmdaleyfi til Grundarfjarðarhafnar vegna landfyllingar í krikanum við Norðurgarð. Gert er ráð fyrir landfyllingunni í aðalskipulagi og í deiliskipulagsáætlunum sem hafa verið í vinnslu. Áætlaður framkvæmdatími er 1. apríl til 1. júní 2026.

    Lagt fram til kynningar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 278 Rætt um grjótvörn á Framnesi. Skipulags- og umhverfisnefnd lýsir yfir áhyggjum af þeim skemmdum sem nýlega hafa orðið og kallar eftir því að lagfæringar og úrbætur fari fram við fyrsta tækifæri. Kostnaði við sjóvörn er skipt milli sveitarfélaga og ríkis.

    Rætt er um hæfisreglur stjórnsýslulaga og sveitarstjórnarlaga og túlkun þeirra í þeim tilvikum þegar nefndarmenn kunna að hafa grenndarhagsmuni af málum sem eru til meðferðar hjá nefndinni, auk fleiri ástæðna sem kunna að hafa áhrif á hæfi. Almennt verða nefndarmenn ekki vanhæfir við afgreiðslu skipulagsmála þó þeir kunni að hafa af þeim grenndarhagsmuni, en minnt er á að nefndarmenn geti gert sig vanhæfa ef þeir tjá opinberlega afstöðu sína um mál sem enn eru til meðferðar hjá nefndinni. Þeir geta ennfremur orðið vanhæfir ef aðilar þeim nákomnir hafa tekið slíka afstöðu til mála sem eru til meðferðar.

    Einnig er rætt um verklag nefndarinnar og meðferð vinnu- og trúnaðargagna sem birt eru í fundargátt eða á fundum nefndarinnar. Þá er rætt um hvenær varamenn taki sæti í stað aðalmanna.

10.Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1

Málsnúmer 2509013Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026.



Vegna kaupa hafnarinnar á Nesvegi 4 er 30 millj. kr. bætt við áætlaða fjárfestingu ársins hjá Grundarfjarðarhöfn. Fjárfestingar fara því úr 391,2 millj. kr. (hjá samstæðunni) í 421,2 millj. kr.



Á móti þessu er gert ráð fyrir aukningu í tekjum hafnarinnar um 24.950 þús. kr. Einnig var sjóðsstreymi í upphafi árs lagfært. Áætluð rekstrarniðurstaða hafnarinnar fer úr 137,7 millj. kr. í 162,6 millj. kr.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026.

Samþykkt samhljóða.

11.Lánasjóður sveitarfélaga - Lántaka 2026

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Ákvörðun um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 250.000.000,-, sem er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins sem samþykkt var í desember 2025, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.

Fyrir fundinum liggur lánasamningur að fjárhæð kr. 100.000.000,- með lokagjalddaga þann 4. desember 2033, og staðfestir bæjarstjórn að hún hafi kynnt sér skilmála hans og samþykkir samninginn.

Til tryggingar lánunum - þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði - samþykkir bæjarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.

Lánið er tekið til fjárfestinga ársins 2026. Þær felast m.a. í húsnæði sveitarfélagsins og endurfjármögnun afborgana á eldri lánum sveitarfélagisns hjá Lánasjóðnum. Um er að ræða verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Grundarfjarðarbæjar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Samþykkt samhljóða.

12.Beiðni um þriggja mánaða einkarétt á kostgæfnisathugun á lóð í eigu Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2509008Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu málsins.

Málið er í vinnslu.

13.Sorpurðun Vesturlands - Fundargerð aðalfundar 2026

Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Sorpurðunar Vesturlands hf. sem haldinn var 25. mars sl.

14.Alþingi - Til umsagnar 582. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur nefnda- og greiningarsviðs Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

15.Umsögn bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar um heilbr.eftirlits frumvarpið

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur bæjarstjóra, dags. 25. mars sl., til þingmanna Norðvesturkjördæmis, þar sem viðraðar eru áhyggjur af þeim áformum sem uppi eru um að færa heilbrigðiseftirlit til ríkisins.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:41.