Fyrir liggur beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn bæjarstjórnar um umsókn Jónu Bjarkar Ragnarsdóttur um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, íbúðir, sem rekið verður sem Íbúð Jónu að Grundargötu 12B, Grundarfirði.
Skv. breytingu á lögum þarf húsnæði, í dag, að vera skráð sem atvinnuhúsnæði, til að unnt sé að veita rekstrarleyfi (sýslumaður) og jákvæða umsögn (bæjarstjórn).
Fyrir liggur minnisblað lögmanns bæjarins um lagabreytinguna og afleiðingar hennar.
Málið var á dagskrá bæjarráðs 5. maí, staðfest í bæjarstjórn 12. maí sl.
Í framhaldi af því voru veittar leiðbeiningar til umsækjanda, um að sækja þurfi um breytingu á skráningu íbúðar í atvinnuhúsnæði, eigi að vera kostur á að veita leyfið (sýslumaður) og jákvæða umsögn (bæjarstjórn), skv. þeim lögum sem hér gilda.
Fulltrúi umsækjanda hefur skorað á bæjarstjórn að veita þrátt fyrir þetta jákvæða umsögn til sýslumanns um málið og var sú beiðni tekin fyrir 22. maí sl. í bæjarráði.
Í samræmi við afgreiðslu bæjarráðsins 22. maí sl. er þessi áskorun lögð fyrir nýja bæjarstjórn til að taka afstöðu til.
Bæjarstjóra falið að skoða nánar með lögmanni.