Málsnúmer 2605017

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 656. fundur - 22.05.2026

Lögð fram gögn um mat þeirra tilboða sem bárust í útboði á utanhússviðgerðum á íþróttahúsi. Tilboð voru opnuð 6. maí sl. og bárust fjögur tilboð.



Framlagt er mat frá VSÓ, sem annaðist útboðið, og mat frá Opus lögmönnum, sem bæjarstjóri aflaði.



Mælt er með að samið verði við lægstbjóðanda, sem er Fyrirtak málningarþjónusta ehf. Tilboð bjóðandans er 79.879.550 kr. eða 60,83% af kostnaðaráætlun heildarverksins.



Lagt til að samið verði við lægstbjóðanda, sbr. tölvupóst bæjarstjóra til bæjarfulltrúa 19. maí 2026.

Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Tæknifræðingi jafnframt falið að ganga í nauðsynlegar aðgerðir til að undirbúa verkframkvæmdina.

Bæjarráð þakkar bjóðendum fyrir sýndan áhuga og þátttöku í útboðinu og biður tæknifræðing eða VSÓ um að koma því á framfæri.


Bæjarstjóri hafði gengið frá samkomulagi um að Fannar Þór Þorfinnsson hjá EFLU yrði eftirlitsmaður fyrir verkið, af hálfu bæjarins sem verkkaupa, og hafði hann tekið þátt í undirbúningi útboðsins, sem slíkur.

Bæjarráð óskar eftir því að ný bæjarstjórn taki afstöðu til þess hvort sú ákvörðun eigi að standa, í ljósi stöðu Fannars Þórs sem er verðandi forseta nýkjörinnar bæjarstjórnar.