Málsnúmer 2606018

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

Til máls tóku FÞÞ, JÓK og BS.

Forseti lagði til, í ljósi þess að enginn starfandi skipulagsfulltrúi er hjá sveitarfélaginu, að gengið yrði tímabundið til samninga við verkfræðistofu, þar til fundin yrði varanleg lausn. Bæjarráði falið að finna varanlega lausn málsins.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð - 657. fundur - 23.06.2026

Bæjarstjórn fól bæjarráði að leita tímabundið til samninga við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa, þar til fundin yrði varanleg lausn.

FÞÞ vék af fundi undir þessum lið og þeim næsta og SG tók sæti hans.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja tímabundið við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa um fyrirliggjandi verkefni, þar til starfið yrði auglýst.

Samþykkt samhljóða.