Málsnúmer 2606025

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundanefnd - 117. fundur - 30.06.2026

Grundarfjarðarbær tekur þátt í íþróttaviku Evrópu, eins og fyrri ár.



Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.- 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið vikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu, auk þess að hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Íþrótta-og tómstundafulltrúi kynnti dagskrá síðustu ára.

Farið var í hugmyndavinnu vegna næstu íþróttaviku Evrópu og komu fram margar góðar hugmyndir sem nefndin ætlar að vinna áfram að.

Umsóknarfrestur vegna styrkja fyrir íþróttaviku Evrópu er til 21.ágúst. Breyting hefur orðið á styrkútdeilingu þannig að hvert héraðssamband fær að hámarki 500.000 kr. en ekki hvert sveitarfélag eins og hefur verið.

Íþrótta- og tómstundanefnd - 118. fundur - 01.09.2026

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23.-30.september 2026. Grundarfjarðarbær mun taka þátt eins og síðustu ár.



Drög að dagskrá kynnt.
Nefndin lýsir yfir ánægju með dagskrá Íþróttaviku Evrópu og fagnar því að Grundarfjarðarbær hefur fengið styrk frá ÍSÍ fyrir íþróttavikuna.
Lagt til að næsti fundur nefndarinn verði 13.október.

Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Íþrótta- og tómstundanefnd - 119. fundur - 13.10.2026

Farið var yfir framkvæmd Íþróttaviku Evrópu, sem haldin var í lok september, og rætt hvernig til tókst.
Nefndin lýsir yfir ánægju með hvernig til tókst með alla viðburði og þá fjölbreyttu dagskrá sem var í boði.