117. fundur 30. júní 2026 kl. 17:00 - 19:03 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB) aðalmaður
  • Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Dagskrá
Dagskrá.



Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi setti fund.



Hann bauð nefndarmenn velkomna á fyrsta fund nýrrar íþrótta- og tómstundanefndar og bauð nýja fulltrúa sérstaklega velkomna á sinn fyrsta fund, þær Halldóru Dögg og Hallfríði Guðný.



1.Erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar 2026 - 2030

Málsnúmer 2606042Vakta málsnúmer

Erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar lagt fram.
Farið yfir erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar.

Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir og að varaformaður nefndarinnar verði Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir . Jafnframt var samþykkt að ritari nefndarinnar verði Hinrik Konráðsson, starfsmaður íþrótta- og tómstundanefndar.

Nýr formaður tók við stjórn fundarins.

2.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2606019Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar við upphaf nefndarstarfs; Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Grundarfjarðarbæ.
Íþrótta-og tómstundafulltrúi fór yfir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa.

3.Fundartími nefnda

Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer

Ákvörðun um reglulegan fundartíma eða heppilega fundardaga nefndarinnar.
Nefndin mun að jafnaði funda á 6-8 vikna fresti. Nefndin telur ekki þörf á að ákveða fastan fundartíma, heldur mun hún koma sér saman um fundartíma hverju sinni.

Nefndin ákvað að næsti fundur yrði þriðjudaginn 28. júlí.

Fundir verða að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar kl.17:00.

4.Verkefni íþrótta- og tómstundanefndar

Málsnúmer 2606043Vakta málsnúmer

Farið yfir hlutverk og verkefni nefndarinnar.
Hlutverk íþrótta- tómstundarnefndar er tiltekið í erindisbréfi hennar. Rætt var um að nefndarmenn séu virkir í þátttöku og hugmyndavinnu, til þess að viðhalda sem áhrifaríkustu starfi í þágu íþrótta- og tómstundamála í bænum.

Íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að mótuð verði skýr framtíðarsýn fyrir íþrótta- og tómstundamál í Grundarfirði. Nefndin vill leggja sitt af mörkum við stefnumótunina og styðja við framgang hennar í samstarfi við bæjaryfirvöld, íþróttafélög og aðra hagaðila.

5.Stígamál í Grundarfirði - Fjallahjólaleiðir

Málsnúmer 2308001Vakta málsnúmer

Farið yfir stígamál á íþróttasvæðinu í Grundarfirði.
Rætt um fyrirhugaða stígagerð í kringum skólann og íþróttavöllinn.

6.Íþróttavika Evrópu 2026

Málsnúmer 2606025Vakta málsnúmer

Grundarfjarðarbær tekur þátt í íþróttaviku Evrópu, eins og fyrri ár.



Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.- 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið vikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu, auk þess að hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Íþrótta-og tómstundafulltrúi kynnti dagskrá síðustu ára.

Farið var í hugmyndavinnu vegna næstu íþróttaviku Evrópu og komu fram margar góðar hugmyndir sem nefndin ætlar að vinna áfram að.

Umsóknarfrestur vegna styrkja fyrir íþróttaviku Evrópu er til 21.ágúst. Breyting hefur orðið á styrkútdeilingu þannig að hvert héraðssamband fær að hámarki 500.000 kr. en ekki hvert sveitarfélag eins og hefur verið.

7.Beam verkefni

Málsnúmer 2604013Vakta málsnúmer

Verkefnið heitir BEAM - Building Entrepreneurial Attitude and Mindset og er Erasmus samstarfsverkefni Snæfellsbæjar, Grundarfjarðar, Stykkishólms og sveitarfélaga í Suður-Eistlandi.



Markmiðið er að þróa hagnýtt og notendavænt stuðningslíkan sem hjálpar okkur að efla frumkvöðlahugsun, sköpun, þátttöku og samfélagslega virkni ungs fólks í dreifbýli.



Kynnt var staða verkefnisins, þar sem farið var yfir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin. Jafnframt var gerð grein fyrir næstu skrefum í áframhaldandi vinnu verkefnisins.
Nefndin lýsti yfir ánægju með verkefnið.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 19:03.