Málsnúmer 2606029

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

Lagt fram bréf Mennta- og barnamálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir tilnefningu þriggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi, sameiginlega, á öðrum af tveimur fulltrúum í skólanefnd FSN. Beiðnin er tilkomin vegna óskar Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra til ráðherra um lausn frá setu í skólanefnd, en skipunartími núverandi skólanefndar er til 24. október 2027.

Af skipun skólanefndar í dag er ljóst, að umræddur fulltrúi þarf að koma frá Grundarfirði.

Bæjarstjóra falið að ræða við fulltrúa annarra sveitarfélaga á Snæfellsnesi um tilnefningu fulltrúa sveitarfélaganna í skólanefnd FSN.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð - 657. fundur - 23.06.2026

Lagt til að bæjarstjóra verði veitt umboð til að skipa fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við fulltrúa annarra sveitarfélaga á Snæfellsnesi.

Bæjarstjóra veitt umboð til að tilnefna fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við aðra fulltrúa.

Samþykkt samhljóða.