Bæjarráð samþykkti á 657. fundi sínum að veittar verði umhverfisviðurkenningar sumarið 2026 og fól bæjarstjóra umsjón verkefnisins. Lagt er til að veittar verði umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026. Markmið viðurkenninganna er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja rækt við umhverfi sitt og gefa gott fordæmi í samfélaginu. Lagt er til að Grundarfjarðarbær veiti í upphafi tvær tegundir umhverfisviðurkenninga, annars vegar heimili ársins 2026, þ.e. snyrtilegasta hús og garður, og hins vegar prýði atvinnulífsins 2026, þ.e. snyrtileg atvinnustarfsemi
Samþykkt samhljóða.