Málsnúmer 2608001

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13. fundur - 15.09.2026

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið.
Umsókn vísað til skipulagsfulltrúa. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni skipulagsmeðferð.

Skipulags- og umhverfisnefnd - 282. fundur - 07.10.2026

Lóðarhafi sækir um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílsskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Byggingarfulltrúi vísar málinu til skipulagsfulltrúa af 13. afgreiðslufundi sínum þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag. Fagurhólstún 7 er innan svæðis ÍB-2 samkvæmt aðalskipulagi. Samkvæmt skipulagsákvæði svæðis ÍB-2 er heimilt að leyfa breytingar á núverandi húsnæði og nýbyggingar (endurbyggingar) sem falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Fagurhól 4, 6, 6a, 8, 8a og Fagurhólstún 5, 9, 10, 12 og 14. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.