Málsnúmer 2608004F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 314. fundur - 10.09.2026

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 55. fundar menningarnefndar.

  • Erindisbréf menningarnefndar lagt fram. Menningarnefnd - 55 Erindisbréf nefndarinnar var kynnt fyrir fundarmönnum.

    Menningarnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Rakel Birgisdóttir og varaformaður nefndarinnar verði Ágústa Einarsdóttir Jafnframt var samþykkt að forstöðumaður menningar- og markaðsmála verði ritari nefndar.

    Nýr formaður tók við stjórn fundarins.

  • Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram. Menningarnefnd - 55 Siðareglur kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
  • .3 2606016 Fundartími nefnda
    Ákvörðun um reglulegan fundartíma og fundardaga nefndar. Menningarnefnd - 55 Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar á sex vikna fresti. Fundartími er mánudagar kl. 16:15.
  • Yfirferð yfir verkefni menningarnefndar kjörtímabilið 2026-2030. Menningarnefnd - 55 Rætt var um föst verkefni menningarnefndar ásamt því að fara yfir komandi viðburði.

    Umræða um verkefnið Vinir bókasafnsins.

    Umræða um undirbúning fyrir jóladagskrá 2026.

    Umræða um 17. júní.
  • .5 2608015 Rökkurdagar 2026
    Umræða um Rökkurdaga 2026 Menningarnefnd - 55 Stefnt er að því að Rökkurdagar verði haldnir á tímabilinu 24. október - 7. nóvember

    Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnti fyrir nefndinni þá viðburði sem nú þegar eru í undirbúningi.

    Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að setja út auglýsingu fyrir viðburði á Rökkurdögum.
  • .6 2608020 Kvikmyndaklúbbur
    Forstöðumaður menningar- og markaðsmála segir frá fundi sem hann átti með áhugasömum aðilum um stofnun kvikmyndaklúbbs.

    Hugmyndin er sú að hér sé starfræktur kvikmyndaklúbbur, sem er opinn öllum. Áherslan er heildræn nálgun á kvikmyndir, allt frá hugmynd að fullbúinni kvikmynd.
    Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd fagnar þessu frumkvæði og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða til fundar með þessum aðilum.
  • Samtal hefur átt sér stað milli franska sendiráðsins og Grundarfjarðarbæjar um að halda franska kvikmyndahátíð. Staða verkefnisins kynnt fyrir menningarnefnd. Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd tekur vel í þá hugmynd að halda franska kvikmyndahátíð í Grundarfirði og leggur til að hún verði haldin um miðjan febrúar.

    Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að halda áfram með verkefnið.
  • Barnamenningarhátíðin Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október 2026.
    Menningarnefnd - 55 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnir Barnó fyrir nefndinni.
  • Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgansröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanir. Menningarnefnd - 55 Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.
  • Takið daginn frá!

    Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag í leiksklólalóðinni.

    Þetta er sambærilegt verkefni og við vorum með í grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.

    Sá viðburður heppnaðist svo vel að við stefnum nú á að gera þetta að árlegum viðburði, ?Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru?.

    Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
    Menningarnefnd - 55 Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.
  • Fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd þakkar Rut fyrir erindið. Menningarnefnd telur að núverandi fyrirkomulag geti aftrað því að viðburðir séu haldnir í Samkomuhúsinu. Algengt er að viðburðahaldarar taki ágóða í hurð og á bar til þess að standa undir viðburðarhaldi. Menningarnefnd lýsir yfir áhuga á því að prófa að breyta til í fyrirfram ákveðinn tíma, t.d. tvö ár. Bókun fundar Bæjarstjórn tekur undir bókun menningarnefndar. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og koma með drög að reglum og gjaldskrá til staðfestingar í bæjarráði.

    Samþykkt samhljóða.
  • Erindi frá Gerum það núna ehf. um það hvernig hægt sé að nýta sögu Grundarfjarðarbæjar betur til uppbyggingar samfélagsins og ferðaþjónustu. Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd þakkar Gerum það núna ehf. fyrir erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða Gerum það núna ehf. til þess að ræða hvernig við getum lyft sögunni okkar á hærra plan.