Málsnúmer 2608015

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 55. fundur - 31.08.2026

Umræða um Rökkurdaga 2026
Stefnt er að því að Rökkurdagar verði haldnir á tímabilinu 24. október - 7. nóvember

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnti fyrir nefndinni þá viðburði sem nú þegar eru í undirbúningi.

Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að setja út auglýsingu fyrir viðburði á Rökkurdögum.

Menningarnefnd - 56. fundur - 28.09.2026

Nefndinni barst erindi frá aðstandendum Krakka Rökkur Rokk.



Einnig barst nefndinni fyrirspurn um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið.



Síðan er áhugi fyrir því að halda sögukvöld og listasýningu.
Menningarnefnd tekur vel í styrkbeiðni Krakka Rökkur Rokk og er það samþykkt samhljóða að styrkja verkefnið um 100.000 kr. Styrkurinn verður tekinn af því fjármagni sem búið var að úthluta til Rökkurdaga í ár.
Menningarnefnd ákveður einnig að breyta dagsetningum fyrir Rökkurdaga og hafa þá frá 5. október og út október.
Menningarnefnd barst erindi um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið. Nefndin tekur vel í erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að vinna málið áfram.
Einnig hafa borist erindi um sögukvöld og listasýningu.

Menningarnefnd fagnar því hvað samfélagið hefur tekið vel í Rökkurdaga og er tilbúið að taka þátt með viðburðum og uppákomum.

Menningarnefnd vill einnig koma á framfæri þökkum til samfélagsins. Áhugi á því að halda viðburði á Rökkurdögum hafa farið fram úr björtustu vonum. Til þess að halda menningarhátíð sem þessa þarf aðstoð frá samfélaginu og það er greinilegt að það er mikill áhugi.