56. fundur 28. september 2026 kl. 16:30 - 18:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
    Aðalmaður: Rakel Birgisdóttir (RB)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir (SKÓ)
Starfsmenn
  • Pálmi Jóhannsson (PJ) starfsmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Jóhannsson starfsmaður
Dagskrá

1.Verkefni menningarnefndar 2026-2030

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Umræður um noktun í Sögumiðstöðinni ásamt annari umræðu.
Rætt var um það hvernig hægt er að gera Sögumiðstöðina notendavænni til framtíðar. Mikill áhugi hefur verið undanfarið að nýta húsið fyrir viðburði og klúbbastarf. Menningarnefnd stefnir að því að fara í heildarendurskoðun á skipulagi Sögumiðstöðvarinnar með það að leiðarljósi hvernig hún geti þjónað samfélaginu öllu. Eins felur Menningarnefnd forstöðumanni menningar- og markaðsmála að endurskoða og einfalda gjaldskrár fyrir Sögumiðstöð og Samkomuhús.

2.Rökkurdagar 2026

Málsnúmer 2608015Vakta málsnúmer

Nefndinni barst erindi frá aðstandendum Krakka Rökkur Rokk.



Einnig barst nefndinni fyrirspurn um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið.



Síðan er áhugi fyrir því að halda sögukvöld og listasýningu.
Menningarnefnd tekur vel í styrkbeiðni Krakka Rökkur Rokk og er það samþykkt samhljóða að styrkja verkefnið um 100.000 kr. Styrkurinn verður tekinn af því fjármagni sem búið var að úthluta til Rökkurdaga í ár.
Menningarnefnd ákveður einnig að breyta dagsetningum fyrir Rökkurdaga og hafa þá frá 5. október og út október.
Menningarnefnd barst erindi um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið. Nefndin tekur vel í erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að vinna málið áfram.
Einnig hafa borist erindi um sögukvöld og listasýningu.

Menningarnefnd fagnar því hvað samfélagið hefur tekið vel í Rökkurdaga og er tilbúið að taka þátt með viðburðum og uppákomum.

Menningarnefnd vill einnig koma á framfæri þökkum til samfélagsins. Áhugi á því að halda viðburði á Rökkurdögum hafa farið fram úr björtustu vonum. Til þess að halda menningarhátíð sem þessa þarf aðstoð frá samfélaginu og það er greinilegt að það er mikill áhugi.

3.Kvikmyndaklúbbur

Málsnúmer 2608020Vakta málsnúmer

Kvikmyndaklúbbur Grundarfjarðar var formlega stofnaður miðvikudaginn 16. Góð mæting var á fundinn og ljóst að áhugi fyrir kvikmyndaklúbb er mikill.

Menningarnefnd fagnar þessu framtaki og hvetur fólk sem sem hefur áhuga á kvikmyndum að kíkja á fund. Eins hvetur menningarnefnd þá sem eru með hugmynd að spennandi hlutum til að gera að setja sig í samband við forstöðumann menningar- og markaðsmála.

4.SSV - Barnamenningarhátíð 2026

Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer

Barnamenningarhátíð Vesturlands - Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október.
Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir þá viðburði sem verða í október á vegum Barnamenningarhátíðar Vesturlands - Barnó Best Mest Vest. Dagskráin verður fjölbreytt og spennandi og verða bæði viðburðir á vegum íbúa Grundarfjarðar á dagskrá ásamt öðrum viðburðum.

5.SSV - Uppbyggingarsjóður Vesturlands - menningarstyrkur

Málsnúmer 1506005Vakta málsnúmer

Opnað var fyrir umsóknir í ppbyggingarsjóð Vesturlands 16. september sl. og er umsóknarfrestur til 21. október.



Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunaraverkefni á Vesturlandi.

6.OP-5 Upplandið

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti í október 2025 tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu. Óskað er eftir að menningarnefnd tilnefni einn fulltrúa í samráðshópinn og einn varamann.
Menningarnefnd tilnefndir Sigurborgu Knarran Ólafsdóttur sem fulltrúa menningarnefndar í samráðshópinn, jafnframt tilnefnir nefndin Ágústu Einarsdóttur sem varamann í samráðshópinn.

Fundi slitið - kl. 18:45.