Barnamenningarhátíð Vesturlands - Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október.
Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir þá viðburði sem verða í október á vegum Barnamenningarhátíðar Vesturlands - Barnó Best Mest Vest. Dagskráin verður fjölbreytt og spennandi og verða bæði viðburðir á vegum íbúa Grundarfjarðar á dagskrá ásamt öðrum viðburðum.