Málsnúmer 2608018

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 55. fundur - 31.08.2026

Fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu
Menningarnefnd þakkar Rut fyrir erindið. Menningarnefnd telur að núverandi fyrirkomulag geti aftrað því að viðburðir séu haldnir í Samkomuhúsinu. Algengt er að viðburðahaldarar taki ágóða í hurð og á bar til þess að standa undir viðburðarhaldi. Menningarnefnd lýsir yfir áhuga á því að prófa að breyta til í fyrirfram ákveðinn tíma, t.d. tvö ár.

Bæjarstjórn - 315. fundur - 15.10.2026

Lögð fram fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu. Jafnframt lagt fram minnisblað forstöðumanns menningar- og markaðsmála ásamt tillögu að gjaldskrá verði breytt fyrirkomulag samþykkt.



Send hefur verið fyrirspurn til sýslumanns vegna þess möguleika að fella niður rekstrarleyfið af húsinu.

Bæjarstjórn vísar málinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Pálmi Jóhannsson, forstöðumaður menningar- og markaðsmála - mæting: 15:14