Málsnúmer 2608020

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 55. fundur - 31.08.2026

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála segir frá fundi sem hann átti með áhugasömum aðilum um stofnun kvikmyndaklúbbs.



Hugmyndin er sú að hér sé starfræktur kvikmyndaklúbbur, sem er opinn öllum. Áherslan er heildræn nálgun á kvikmyndir, allt frá hugmynd að fullbúinni kvikmynd.
Menningarnefnd fagnar þessu frumkvæði og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða til fundar með þessum aðilum.

Menningarnefnd - 56. fundur - 28.09.2026

Kvikmyndaklúbbur Grundarfjarðar var formlega stofnaður miðvikudaginn 16. Góð mæting var á fundinn og ljóst að áhugi fyrir kvikmyndaklúbb er mikill.

Menningarnefnd fagnar þessu framtaki og hvetur fólk sem sem hefur áhuga á kvikmyndum að kíkja á fund. Eins hvetur menningarnefnd þá sem eru með hugmynd að spennandi hlutum til að gera að setja sig í samband við forstöðumann menningar- og markaðsmála.