Lagt fram erindi íþrótta- og tómstundafulltrúa með tillögu að breytingum á mönnun og vaktafyrirkomulagi í íþróttamiðstöð, ásamt samanburði á kostnaði við núverandi kerfi, vaktafyrirkomulagi og aukinnar mönnunar yfir vetrarmánuðina.
Lögð fram tillaga um breytingar á starfsmannafjölda á vöktum yfir vetrartímann í íþróttamiðstöðinni. Kostnaðarauki við breytingarnar nema 9,5-18,5 millj. kr. á ári.
Gestir
- Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 15:05
Íþrótta- og tómstundafulltrúa var þakkað fyrir.
Bæjarstjórn vísar málinu til frekari skoðunar og afgreiðslu í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.