660. fundur 22. september 2026 kl. 08:15 - 10:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ) formaður
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2026.

Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 12,3% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Rekstraryfirlit 2026

Málsnúmer 2605013Vakta málsnúmer

Lagt fram sex manaða rekstraruppgjör fyrir janúar-júní 2026.

Afkoma reksturs fyrstu sex mánuði ársins er 17,1 millj. kr. lakari en áætlun gerði ráð fyrir vegna hærri fjármagnsgjalda.

4.Launaáætlun 2026

Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-ágúst 2026.

Raunlaun eru yfir áætlun ársins.

5.Yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur

Málsnúmer 2603018Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur 30.06.2026.

Farið yfir lista yfir ógreiddar viðskiptakröfur 30.06.2026.

6.Álagning útsvars 2027

Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer

Ákvörðun um álagningarprósentu útsvars 2027.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

7.Fasteignagjöld 2027

Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer

Lögð fram bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2027, sundurliðuð niður á álagningarflokka.

Bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2027 kynnt. Farið yfir forsendur og breytingu milli ára. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

8.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga 2026.

Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð og rætt um breytingar á þeim. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

9.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609002Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 ásamt forsenduspá.

Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og uppfærða fundadagskrá bæjarráðs.

10.Fjölgun á vakt í íþróttamiðstöð

Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi íþrótta- og tómstundafulltrúa með tillögu að breytingum á mönnun og vaktafyrirkomulagi í íþróttamiðstöð, ásamt samanburði á kostnaði við núverandi kerfi, vaktafyrirkomulagi og aukinnar mönnunar yfir vetrarmánuðina. Lagðar fram nokkrar tillögur um breytingar á starfsmannafjölda á vöktum yfir vetrartímann í íþróttamiðstöðinni. Kostnaðarauki við breytingarnar nema 8,3-18,5 millj. kr. á ári.



Bæjarstjórn vísaði málinu til umfjöllunar í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir tillögu um óbreytt fyrirkomulag starfsmannahalds fram að áramótum og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram tillögur vegna næsta árs.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 09:34

11.Innkaupareglur Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2606027Vakta málsnúmer

Lagðar fram nýjar innkaupareglur Grundarfjarðarbæjar sem bæjarstjórn vísaði til afgreiðslu í bæjarráði, ásamt minnisblaði bæjarstjóra.



Lagt til að bæjarráð feli bæjarstjóra að vinna tillögu að endurskoðuðum innkaupareglum Grundarfjarðarbæjar og leggja fyrir bæjarráð og síðar bæjarstjórn til afgreiðslu.



Á meðan sú vinna stendur yfir er lagt til að fjárhæðarmörk samkvæmt 8. gr. innkaupareglna verði uppfærð til samræmis við gildandi viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt lögum og reglugerðum um opinber innkaup.

Samþykkt samhljóða.

12.Hrannarstígur 18 íbúð 101 - Úthlutun

Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um íbúð fyrir eldri borgara, nr. 101 að Hrannarstíg 18.

Bæjarráð samþykkir að úthluta íbúðinni til Ingu Björnsdóttur og felur skrifstofustjóra að ganga frá samningum.

Samþykkt samhljóða.

13.FSN - Skólaakstur vorönn 2026

Málsnúmer 2608008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf FSN um skólaakstur á vorönn 2026 ásamt reikningi. Kostnaðarhlutur Grundarfjarðarbæjar er 2.822.226 kr.

14.Meistaraflokkur kvenna í blaki - Rekstaruppgjör tímabil 2024-2025

Málsnúmer 2609012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraruppgjör Blakdeildar UMFG Mlf. kvenna fyrir tímabilið 2024-2025.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:15.