Málsnúmer 2609002F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 315. fundur - 15.10.2026

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 13. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
  • Sótt er um byggingarheimild til að byggja nýtt geymsluhúsnæði með nettóflatarmál upp á 19,6 m2. Sambærilegur geymsluskúr var rifinn fyrir um ári síðan vegna slæms ástands og verða sökkull og plata endurnýtt. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Fyrri skúr var byggður árið 2013 og staðfestir nágranni á Grundarvegi 9 með undirritun samþykki sitt fyrir byggingunni, en skúrinn stendur upp við lóðamörk. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þar sem um er að ræða endurbyggingu á skúr er fyrra samþykki eiganda nágrannalóðar talið fullnægjandi og byggingarfulltrúaembættið mun tilkynna honum um þá niðurstöðu. Byggingarheimild verður gefin að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012.
  • Eigandi kjallaraíbúðar á Grundargötu 12b sækir um að hún verði skráð sem atvinnuhúsnæði. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Afgreiðslu málsins frestað.
  • Sótt er um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Umsókn vísað til skipulagsfulltrúa. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni skipulagsmeðferð.
  • Sótt er um byggingarleyfi fyrir óupphitað og óeinangrað 60 m2 stálbogahús á jörðinni Innri-Látravík. Húsið yrði notað sem hesthús. Undirstöður eru úr járnbentri steinsteypu og klæðning hússins er báraðar málmplötur. Húsið yrði staðsett við hlið fjárhúsa sem eru svipuð að lögun og stærð og nýtir sömu aðkomu Ekki liggur fyrir deiliskipulag, en skv. aðalskipulagi er svæðið landbúnaðarland. Samkvæmt aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar er heimilt að gera ráð fyrir mannvirkjagerð sem búskapur og landbúnaðarnot jarðarinnar kalla á. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráformin eru samþykkt á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012.