Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína. Það helsta sem hann fór yfir var um baðlónsverkefnið, hitaveitumál, ÍB6 svæðið, fund sem hann átti með Guðrúnu Magneu um Earth Check verkefnið, nýjar ráðningar starfsfólks, fundi um eigendastefnu Nesvegar 4, fundi starfshóps um kaup á slökkvibifreið, fjármál og fjárfestingar, Háubakkaverkefnið og deiliskipulag hafnarinnar.