Málsnúmer 2609018

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundanefnd - 119. fundur - 13.10.2026

Ungmennaþing Vesturlands 2026 leggur fram eftirfarandi ályktanir fyrir Alþingi, sveitarstjórnir á Vesturlandi og aðra ráðamenn. Ályktanirnar eru byggðar á umræðum og vinnu ungmenna á þinginu.
Íþrótta- og tómstundanefnd fagnar ályktun ungmennaþingsins og tekur jákvætt undir öll atriði hennar.

Nefndin tekur sérstaklega undir ályktun þingsins að meira samstarf í íþróttum sé að hinu góða og tryggja eigi þátttöku allra ungmenna og barna óháð búsetu. Nefndin harmar því niðurstöðu Ungmennafélags Víkings í Snæfellsbæ að slíta samstarfi sínu við önnur íþróttafélög á Snæfellsnes (Snæfellsnes samstafið) og vonum við að þeir endurskoði þá ákvörðun og haldi því góða samstarfi áfram.

Í framhaldi af ályktun ungmennaþings Vesturlands um mikilvægi þess að félagsmiðstöðvar unglinga séu starfræktar í eigin húsnæði þá hvetur nefndin bæjarstjórn Grundarfjarðar að skoða þann möguleika líkt og nefndin setti fram í 118. fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar.

Nefndin hrósar unga fólkinu á Vesturlandi sem lagði fram sinn tíma og vinnu við að mæta á ungmennaþing Vesturlands til að vinna að málefnum unga fólksins, greinilegt að framtíðin er björt.

Bæjarstjórn - 315. fundur - 15.10.2026

Lagðar fram til kynningar ályktanir Ungmennaþings Vesturlands 2026 fyrir Alþingi, sveitarstjórnir á Vesturlandi og aðra ráðamenn. Ályktanirnar eru byggðar á umræðum og vinnu ungmenna á þinginu.