Sótt er um byggingarleyfi fyrir fimm frístundahúsum á byggingarreit austan við gamla bæjarhólinn. Lagður fram nýr aðaluppdráttur. Umsækjandi hefur jafnframt í vinnslu nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir fleiri sambærilegum frístundahúsum, en í gildandi deiliskipulagi Skerðingsstaða er gert ráð fyrir fimm frístundahúsum á reitnum sem um ræðir.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14Byggingarfulltrúi samþykkir fyrirhuguð byggingaráform með fyrirvara um minniháttar lagfæringu á afstöðumynd. Áformin eru í samræmi við gildandi deiliskipulag Skerðingsstaða. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum ákvæðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2008.
Framhald af síðasta fundi.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14Að lokinni yfirferð og að teknu tilliti til þeirra breytinga sem samþykkt laga 25/2026 hefur í för með sér telur byggingarfulltrúi ekki þörf á að breyta skráningu hússins í atvinnuhúsnæði vegna fyrirliggjandi umsóknar um rekstrarleyfi. Byggingarfulltrúi leggur til að umsagnarbeiðni sýslumannsins á Vesturlandi, sbr. mál 2604021, verði tekin fyrir með hefðbundnum hætti.
Sótt er um byggingarleyfi til að byggja vélageymslu í landi Naustáls. Byggingin er í notkunarflokki 1. Um er að ræða 240 m2 hús á staðsteyptum sökkli en byggt úr límtrésrömmum og klætt með steinullareiningum. Á aðaluppdrætti kemur fram afstöðumynd. Húsið er byggt á aðalskipulagsreitnum E-8 og utan við 30 metra miðlínu frá flugvellinum.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið og er umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisnefndar. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni meðferð nefndarinnar.
Sótt er um byggingarleyfi til að reisa girðingu upp að gangstétt milli Hlíðarvegs 9 og 11. Fyrir liggur undirritað samþykki beggja lóðarhafa. Sækja þarf um byggingarleyfi þar sem fyrirhuguð hæð girðingar er 2,0 m, en skv. byggingarreglugerð er girðing allt að 1,8 m einungis tilkynningarskyld.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14Byggingarfulltrúi samþykkir áformin.
Lögð fram til umræðu reglur og gjaldskrá stöðuleyfa sem bæjarstjórn samþykkti fyrr á árinu. Samþykktin felur í sér lækkun stöðuleyfisgjalda og að ólíkar gerðir stöðuleyfa eru felldar niður. Rætt um verklag við afgreiðslu umsókna.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14Samþykkt að taka stöðuleyfisumsókni fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þegar þær hafa borist í gegnum íbúagátt. Ennfremur að afgreiðslugjald stöðuleyfisumsókna hækki ekki í samræmi við byggingarvísitölu það sem eftir er af árinu. Kostnaður við afgreiðslu stöðuleyfisumsókna verður því út árið alls kr. 58.227: 39.500 fyrir stöðuleyfi 18.727 sem er afgreiðslugjald m.v. byggingarvísitölu septembermánaðar.
Áður var fjárhæð stöðuleyfisgjalds 129.164, og lækka stöðuleyfisgjöld því um 55%.
Sérstaklega er farið yfir 7. grein samþykktarinnar sem fjallar um heimildir til að fjarlægja lausamuni sem ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir, en einhver dæmi eru um að ekki hafi verið sótt um stöðuleyfi vegna lausafjármuna hjá sveitarfélaginu.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkti fyrirliggjandi samþykkt og gjaldskrá stöðuleyfa í maí 2026. Samþykktin er hér aftur lögð fram vegna minniháttar orðalagsbreytinga frá upphaflegri samþykkt eftir ábendingar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um að ekki þyrfti að birta stöðuleyfisreglur í B-deild stjórnartíðinda.