Málsnúmer 2610010

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 315. fundur - 15.10.2026

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um uppbyggingu leiguíbúða í Grundarfirði í samstarfi við Bjarg íbúðafélag.

Til máls tóku FÞÞ, JÓK, BS, BJJ og SG.

Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra heimild til að hefja samstarf við Bjarg íbúðafélag og HMS um undirbúning uppbyggingar leiguíbúða í Grundarfjarðarbæ. Endanleg tillaga um staðsetningu, stofnframlag og þátttöku sveitarfélagsins verði lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð - 662. fundur - 05.11.2026

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um erindi HMS vegna stofnframlags til fjögurra leiguíbúða við Ölkelduveg.

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að svara erindi HMS jákvætt vegna umsóknar Bjargs íbúðafélags um stofnframlag til byggingar fjögurra leiguíbúða í raðhúsi við Ölkelduveg í Grundarfirði.

Samþykki Grundarfjarðarbæjar er bundið þeirri skýru forsendu að ríkissjóður fjármagni stofnframlag sveitarfélagsins í samræmi við boðað tímabundið fyrirkomulag ríkisstjórnarinnar vegna uppbyggingar almennra íbúða. Samþykkið felur ekki í sér fjárskuldbindingu af hálfu Grundarfjarðarbæjar vegna stofnframlagsins ef ríkisfjármögnun fæst ekki eða reynist ekki ná til verkefnisins.

Bæjarstjóra er jafnframt falið að fylgja málinu eftir gagnvart HMS og Bjargi íbúðafélagi og leggja endanlega útfærslu verkefnisins fyrir bæjarstjórn þegar fyrir liggur staðfesting á fjármögnun ríkisins og öðrum forsendum verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.