Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2027, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2028-2030. Jafnframt lagt fram yfirlit sem sýnir áætlun 2027 í samanburði við áætlun 2026 niður á málaflokka ásamt fjárfestingaáætlun ársins 2027.
Farið yfir framangreind gögn og drög að fjárhagsáætlun 2027-2030. Drögunum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um erindi HMS vegna stofnframlags til fjögurra leiguíbúða við Ölkelduveg.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að svara erindi HMS jákvætt vegna umsóknar Bjargs íbúðafélags um stofnframlag til byggingar fjögurra leiguíbúða í raðhúsi við Ölkelduveg í Grundarfirði.
Samþykki Grundarfjarðarbæjar er bundið þeirri skýru forsendu að ríkissjóður fjármagni stofnframlag sveitarfélagsins í samræmi við boðað tímabundið fyrirkomulag ríkisstjórnarinnar vegna uppbyggingar almennra íbúða. Samþykkið felur ekki í sér fjárskuldbindingu af hálfu Grundarfjarðarbæjar vegna stofnframlagsins ef ríkisfjármögnun fæst ekki eða reynist ekki ná til verkefnisins.
Bæjarstjóra er jafnframt falið að fylgja málinu eftir gagnvart HMS og Bjargi íbúðafélagi og leggja endanlega útfærslu verkefnisins fyrir bæjarstjórn þegar fyrir liggur staðfesting á fjármögnun ríkisins og öðrum forsendum verkefnisins.
Lagt fram til kynningar minnisblað forstöðumanns menningar- og markaðsmála ásamt teikningu af kjallara að Grundargötu 30. Samkomulag hefur verið gert milli Grundarfjarðarbæjar og Þjónustustofunnar ehf. um skipti á geymslurýmum í kjallara Grundargötu 30, til að bæta nýtingu UMFG á rýminu.