Lagt fram minnisblað bæjarstjóra þar sem lagt er til að Grundarfjarðarbær efni til hugmyndasamkeppni um listaverk og staðsetningu áningarstaðar í Grundarfirði. Markmiðið er að skapa áhugavert kennileiti sem höfðar til íbúa og gesta og býður upp á aðlaðandi umgjörð til ljósmyndunar. Veitt verði verðlaun fyrir vinningstillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir að efnt verði til hugmyndasamkeppni um listaverk og áningarstað í Grundarfjarðarbæ. Bæjarstjóra falið að útfæra fyrirkomulag samkeppninnar, þar á meðal verðlaun fyrir vinningstillögu, í samráði við skipulags- og umhverfisnefnd.
Samþykkt samhljóða.