2. fundur 02. ágúst 2023 kl. 15:00 - 15:20 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ) byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Ártún 3 - Byggingarleyfi vegna viðbyggingar, síðari hluti

Málsnúmer 2211045Vakta málsnúmer

Vélsmiðja Grundarfjarðar sækir um byggingarheimild vegna viðbyggingar við Ártún 3. Um er að ræða seinni hluta viðbyggingar en fyrri hlutinn var byggður vorið 2020.



Á 266. fundi bæjarstjórnar staðfesti bæjarstjórn bókun skipulags- og umhverfisnefndar á fundi nr. 244 vegna málsins en í afgreiðslunni fól nefndin byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi með fyrirvara um að nýtingarhlutfall á lóðinni sé í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Í ljós kom við afgreiðslu máls að matshluti 01 var rangt skráður. Lóðarhafi hefur skilað inn uppfærðum aðaluppdráttum dags. 01.08.2023 ásamt uppfærðum skráningartöflum fyrir matshluta 01, 02 og 03.
Eftir leiðréttingu á skráningu er nýtingarhlutfallið 0,33 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarks nýtingarhlutfall 0,32. Byggingarfulltrúi lítur svo á að aukið nýtingarhlutfall sem nemi 0,01 sé óveruleg breyting og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Með vísan í 2. og 3. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni skuggavarp eða innsýn.

Þar sem ofangreint frávik á nýtingarhlutfalli er svo óverulegt, óskar byggingarfulltrúi eftir staðfestingu bæjarstjórnar til útgáfu byggingarheimildar í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 grein í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

Fundi slitið - kl. 15:20.