574. fundur 30. ágúst 2021 kl. 12:00 - 13:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Kosning í nefndir skv. B lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1806014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga frá Mjöll Guðjónsdóttur formanni kjörstjórnar um skipun varamanns í kjörstjórn.
Tillaga er um að Guðrún Margrét Hjaltadóttir verði kjörin varamaður í kjörstjórn, í stað Einars Þórs Jóhannssonar, sem er fluttur úr sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða.

2.Skipulagsbreyting - nýtt starf íþrótta- og tómstundafulltrúa

Málsnúmer 2108011Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga bæjarráðs, byggð á vinnu bæjarfulltrúa, um skipulagsbreytingar sem snerta íþrótta- og æskulýðsmál, fræðslumál, forvarnir og félagsstarf.

Eftirfarandi tillaga lögð fram og jafnframt bókuð í trúnaðarmálabók (sjá breytingu hér fyrir neðan).

„Í stefnumótunarvinnu bæjarstjórnar voru íþrótta-, æskulýðs- og skólamál, forvarnir og félagsstarf, m.a. til skoðunar. Í drögum að heildarstefnu, sem m.a. tekur yfir málefni fjölskyldustefnu o.fl., er að finna áform um að sinna með markvissari hætti þessum viðfangsefnum, stuðla að auknum tengslum við frjáls félagasamtök og vinna að því að efla lýðheilsu íbúa.

Í rekstrar- og stjórnsýsluúttekt HLH ráðgjafar ehf., sem unnin var fyrir Grundarfjarðarbæ 2020, voru lagðar fram fjölmargar tillögur sem snúa að rekstrarþáttum, fjárhag og stjórnsýslu Grundarfjarðarbæjar.
Í tillögum sem snúa að stjórnsýslu og stjórnskipulagi er m.a. að finna tillögu um að stofnað verði nýtt starf íþrótta- og tómstundafulltrúa, með skipulagsbreytingu.

Hér er lögð fram slík tillaga, með starfslýsingu fyrir hið nýja starf. Starfsþættir eru úr störfum sbr. starfslýsingar forstöðumanns íþróttamannvirkja, menningar- og markaðsfulltrúa og frístundaleiðbeinanda (forstöðumaður félagsmiðstöðvar), auk þess sem bætt er við nýjum þáttum, sem ekki hefur áður verið sinnt og/eða ekki verið skýrt kveðið á um í starfslýsingum í stjórnkerfi Grundarfjarðarbæjar.

Í kjölfar fyrrgreindrar vinnu er nú lagt til að innleidd verði skipulagsbreyting með stofnun nýs starfs íþrótta- og tómstundafulltrúa. Samhliða, að lagt verði niður 100% starf forstöðumanns íþróttamannvirkja og 32,15% starf frístundaleiðbeinanda (forstöðumanns félagsmiðstöðvar). Um hið nýja starf fari skv. 2. gr. starfsreglna bæjarstjórnar við ráðningu starfsmanna.

Breytingin taki gildi þann 1. desember 2021 og miðast starfslok starfsmanna í störfum sem lögð verða niður þannig við 30. nóvember 2021, nema samkomulag verði gert um annað fyrirkomulag við umrædda starfsmenn, í kjölfar uppsagnar. Bæjarstjóra verði falið að annast frágang starfsloka, auglýsingu nýs starfs og umsjón ráðningarferlis þannig að gerð verði tillaga til bæjarstjórnar um ráðningu í starfið að undangengnu rökstuddu mati.

Bæjarstjóra verði falið að uppfæra skipurit bæjarins til samræmis við samþykkt bæjarstjórnar. Þá verði bæjarstjóra falið að uppfæra stjórnskipulag og innri reglur til samræmis við samþykktina.“

Framlögð gögn;
- Greinargerð bæjarráðs, dags. 19. ágúst 2021, með tillögu um nýja starfslýsingu
- Stefnumótunarvinna bæjarstjórnar, sbr. vinnuskjal og efni vinnu með Capacent 2019-2020
- Tillaga HLH ráðgjafar ehf. til bæjarstjórnar, 2020, um málefnið
- Erindisbréf íþrótta- og æskulýðsnefndar, sjá hér: https://www.grundarfjordur.is/static/files/files/erindisbref-fyrir-ithrotta-og-aeskulydsnefnd-april-2014.pdf
- Erindisbréf öldungaráðs, sjá hér:
https://www.grundarfjordur.is/static/files/erindisbref-oldungarads-grundarfjardar.pdf
- Erindisbréf ungmennaráðs, sjá hér:
https://www.grundarfjordur.is/static/files/erindisbref-ungmennarads.pdf
- Starfslýsing menningar- og markaðsfulltrúa, maí 2018
- Starfslýsing forstöðumanns íþróttamannvirkja, júní/júlí 2012


--

Bæjarráð samþykkir samhljóða að stofna nýtt starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Samhliða verði lagt niður 100% starf forstöðumanns íþróttamannvirkja og 32,15% starf frístundaleiðbeinanda (forstöðumanns félagsmiðstöðvar). Nýtt skipulag skv. bókun þessari taki gildi þann 1. desember 2021.

Bæjarstjóra er falið að annast frágang starfsloka skv. ákvörðun þessari, auglýsingu nýs starfs og umsjón ráðningarferlis þannig að gerð verði tillaga til bæjarstjórnar um ráðningu í starfið að undangengnu rökstuddu mati. Bæjarstjóra er falið að uppfæra skipurit bæjarins til samræmis við samþykkt bæjarráðs. Þá er bæjarstjóra falið að uppfæra stjórnskipulag og innri reglur til samræmis við samþykktina.


Bókun þessi er gerð í trúnaðarmálabók bæjarstjórnar. Trúnaði af bókuninni verði aflétt þegar viðkomandi aðilum hefur verið kynnt þessi ráðstöfun. Samþykkt samhljóða.

// Kl. 23:00 þann 30. ágúst 2021: Trúnaði aflétt og bókun birt.

Bókanir fundargerðar samþykktar í lok fundar.

Fundi slitið - kl. 13:15.