586. fundur 04. apríl 2022 kl. 16:30 - 19:44 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Leikskólinn Sólvellir - Skipulag skólastarfs 2022

Málsnúmer 2203043Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að viðmiðum um barngildi og mönnun sem og reglur um fáliðun á Leikskólanum Sólvöllum.

Undir þessum lið sátu fundinn gegnum teams Gunnþór E. Gunnþórsson, ráðgjafi hjá Ásgarði, Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri, bæjarfulltrúarnir Hinrik Konráðsson, Rósa Guðmundsdóttir og Garðar Svansson, sem jafnframt er formaður skólanefndar og aðrir fulltrúar skólanefndar, þau Valdís Ásgeirsdóttir og Loftur Árni Björgvinsson, auk Sigríðar G. Arnardóttur, varabæjarfulltrúa.

Kynning þessi er til undirbúnings umsagna bæjarráðs og skólanefndar og afgreiðslu bæjarstjórnar síðar í vikunni.

Gunnþór, ráðgjafi hjá Ásgarði, fór yfir tilurð vinnu við setningu barngildisviðmiða og reglur um fáliðun á leikskólum. Með þessum tillögum er verið að skerpa á þeim viðmiðum sem unnið hefur verið eftir. Tillögurnar eru unnar með stjórnendum Leikskólans Sólvalla og eru þær hluti af frekari vinnu við að styrkja starf leikskólans.

Skv. reglunum er gert ráð fyrir að grunnmönnun sé 8 börn á hvert stöðugildi. Að jafnaði skulu stöðugildi vera í takt við fjölda barna, en fjöldi barna á hvert stöðugildi fækkar með lækkandi aldri, en miðað er við 4 börn á hvert stöðugildi í yngsta aldurshópnum. Til viðbótar koma svo stöðugildi sem miða við stuðningsþarfir barna hverju sinni. Unnið er að verklagsreglum um sérkennslu og stuðning, sem verða lagðar fyrir á næstu vikum.

Fáliðun telst þegar fáir starfsmenn eru við vinnu og viðmiðið er að fjöldi barna fari ekki yfir 8 á hvern starfsmann. Reglurnar gera grein fyrir því til hvaða úrræða skuli gripið ef fjöldi barna á hvert stöðugildi fer yfir grunnviðmið.

Fram fór umræða fundarmanna um tillögurnar.

Bæjarráð fagnar framlögðum og skýrum tillögum og leggur til við bæjarstjórn að þær verði samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Valdís Ásgeirsdóttir - mæting: 16:30
  • Gunnþór E. Gunnþórssosn - mæting: 16:30
  • Sigríður G. Arnardóttir - mæting: 16:30
  • Hinrik Konráðsson - mæting: 16:30
  • Rósa Guðmundsdóttir - mæting: 16:30
  • Garðar Svansson - mæting: 16:30
  • Heiðdís Lind Kristinsdóttir - mæting: 16:30
  • Loftur Árni Björgvinsson - mæting: 16:30

2.Lausafjárstaða 2022

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

3.Greitt útsvar 2022

Málsnúmer 2202005Vakta málsnúmer

Lagt fram bráðabirgðayfirlit yfir greitt útsvar. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar lækkað um 1,3% miðað við sama tímabil í fyrra.

4.Tillaga um afskriftir viðskiptakrafna

Málsnúmer 2204001Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um afskrift viðskiptakrafna Grundarfjarðarbæjar að fjárhæð 36.389 kr.

Samþykkt samhljóða.

5.Alþingi - 418. mál til umsagnar

Málsnúmer 2203052Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga til þingsályktunar frá heilbrigðisráðherra um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

Bæjarstjóra falið að gera umsögn um málið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

6.Samband íslenskra sveitarfélaga - Viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka

Málsnúmer 2203048Vakta málsnúmer


Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. mars sl., um viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.

7.Hesteigendafélag Grundarfjarðar - Ársreikningur 2021

Málsnúmer 2203059Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Hesteigendafélags Grundarfjarðar vegna ársins 2021.

8.Artak ehf - Ársreikningur 2021

Málsnúmer 2203045Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Artaks ehf. vegna ársins 2021.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:44.