640. fundur 18. ágúst 2025 kl. 16:15 - 17:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Davíð Magnússon (DM)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Fundurinn er aukafundur, boðaður í dag vegna þessa eina dagskrármáls.

1.Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa

Málsnúmer 2502024Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri sagði frá því að Helena Ólafsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi hefði fyrr í dag tilkynnt að hún þyrfti að segja starfi sínu lausu, af fjölskylduástæðum.



Af þeim sökum þurfi að ákveða hvernig haga eigi ráðningu í starfið, en bæjarstjórn ræður í starf íþrótta- og tómstundafulltrúa á grundvelli 2. gr. Starfsreglna bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna.



Gengið var frá ráðningu í starfið í lok apríl sl. og skipaði bæjarstjórn þá tvo bæjarfulltrúa, Davíð Magnússon og Loft Árna Björgvinsson, til að taka þátt í ráðningarferli, viðtölum við umsækjendur og mat á umsóknum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita til ráðgjafa VinnVinn ráðningarstofunnar, sem aðstoðaði við ráðningarferlið í apríl sl., um svör við tilteknum spurningum sem ræddar voru á fundinum.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarfulltrúunum Davíð og Lofti Árna sama umboð og síðast, til að ákveða næstu skref og taka þátt í framhaldandi eða nýju ráðningarferli um starfið, eftir atvikum.

Gestir

  • Loftur Árni Björgvinsson bæjarfulltrúi - mæting: 16:15
Fundi slitið, gengið verður frá fundargerð í framhaldi af fundinum og samþykkis leitað á henni hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 17:00.