661. fundur 22. október 2026 kl. 08:15 - 12:05 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ) formaður
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-september 2026.

Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 10,4% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Setbergssókn - Fundur með bæjarráði

Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkumsókn sóknarnefndarnefndar Setbergssóknar.

Sóknarnefnd fór yfir fjárhagsstöðu sóknarinnar og styrkumsókn sína til kórastarfs og barnastarfs.

Gestir

  • Karen Hjartardóttir - mæting: 09:00
  • Ásthildur Elva Kristjánsdóttir - mæting: 09:00
  • Ingi Hans Jónsson - mæting: 09:00
  • Sigurborg Kr. Hannesdóttir - mæting: 09:00

4.Fasteignagjöld 2027

Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer

Framhaldsumræða. Lagt fram yfirlit um áætlun fasteignagjalda 2027 ásamt samanburði við önnur sveitarfélög.

Farið yfir forsendur og breytingu milli ára og gengið frá tillögu til bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

5.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Framhaldsumræða. Lagðar fram uppfærðar tillögur að þjónustugjaldskrám fyrir árið 2027 ásamt samanburði við önnur sveitarfélög.

Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð. Þjónustugjaldskrár fyrir árið 2027 samþykktar og tillögum vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

6.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2027

Málsnúmer 2609010Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir sem borist hafa um styrki árið 2027, ásamt yfirliti.

Umsóknir yfirfarnar og vísað til næsta fundar bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

7.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609002Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að tekjuáætlun og launaáætlun ársins 2027 ásamt drögum að fjárfestingaáætlun ársins 2027.

Farið yfir drög að tekjuáætlun, launaáætlun og fjárfestingaáætlun ársins 2027.

8.Samkomuhús - gjaldskrá

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýrri gjaldskrá Samkomuhúss sem bæjarstjórn vísaði til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá.

Samþykkt samhljóða.

9.Útboð á vátryggingum Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer

Lögð fram tölvupóstsamskipti við Vátryggingaráðgjöf Consello ásamt tilboði og verklýsingu vegna útboðs vátrygginga.



Lagt til að Grundarfjarðarbær fari í útboð vegna vátrygginga, en síðasta útboð var framkvæmt árið 2019.

Bæjarráð samþykkir að fara í útboð vátrygginga og samþykkir tilboð Vátryggingaráðgjafar Consello, leið 2.

Samþykkt samhljóða.

10.Umhirða opinna svæða

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála um endurskoðun á umhirðu opinna svæða og áframhald verkefnsins "Viljandi villt."

Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála - mæting: 10:30

11.Nýtt stöðugildi - Garðyrkjufræðingur - umsjónarmaður grænna svæða

Málsnúmer 2610004Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála með tillögu að ráðningu garðyrkjufræðings.

Bæjarráð vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.

12.Ölkeldan leit að uppsprettu

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála um stöðu ölkeldunnar í Ölkeldudal, verndarstöðu og næstu skref.

Verkefnastjóra falið að vinna málið áfram. Málinu vísað til kynningar í skipulags- og umhverfisnefnd.

Samþykkt samhljóða.

SG yfirgaf fundinn kl. 11:58.

13.Fellaskjól - Erindi vegna fjarskiptasamband

Málsnúmer 2610018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi setts forstöðumanns Fellaskjóls varðandi fjarskiptasamband.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

14.Hjónaklúbbur Eyrarsveitar - Ársuppgjör 2025

Málsnúmer 2610003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Hjónaklúbbs Eyrarsveitar 2025-2026.

15.Björgunarsveitin Klakkur - Ársuppgjör 2025

Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Björgunarsveitarinnar Klakks fyrir árið 2025.

16.Félag eldri borgara í Eyrarsveit - Ársuppgjör 2025-2026

Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Félags eldri borgara í Grundarfjarðarbær fyrir 2025-2026.

17.Svæðisgarðurinn Snæfellsnes - Ársfundur fulltrúaráðs

Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar tölvupóstur Svæðisgarðsins Snæfellsness um ársfund fulltrúaráðs sem haldinn verður 5. nóvember nk.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:05.