6. fundur 10. september 2019 kl. 16:00 - 18:55 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) formaður
  • Runólfur Guðmundsson (RUG)
  • Sólrún Guðjónsdóttir (SG)
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Hafnargerð 2019-2020, Lenging Norðurgarðs

Málsnúmer 1901030Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu hafnarframkvæmda.

Farið var yfir drög að útboðsgögnum um rekstur stálþils vegna lengingar Grundarfjarðarhafnar. Ætlunin er að útboð verði auglýst síðar í þessari viku.

Helstu verkþættir eru:
- Gerð á 90 m löngum bermugarði.
- Rekstur 122 stálþilsplatna, akkerisplötur steyptar, uppsetning staga og festinga.
- Jarðvinna aftan við stálþil.
- Kantbitar steyptir með pollum, uppsetning á stigum og fríholtum.

Einnig lagt fram til kynningar bréf sem sent var tilteknum húseigendum vegna efnisflutninga og fyrirhugaðra framkvæmda.

Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn með ábendingum eftir yfirferð sína, og að útboð verði auglýst í kjölfarið.

Hafnarstjórn samþykkir jafnframt að fela Eflu, verkfræðistofu, að ljúka hönnun á þekju og rafmagni vegna lengingar Norðurgarðs.

Hafnarstjórn óskar eftir því að kostnaðaráætlun verði ekki lögð fram í tilboðsferlinu, fyrr en af hálfu Vegagerðarinnar við tilboðsopnunina sjálfa.

Ofangreindir liðir samþykktir samhljóða.

2.Spurningar vegna hafnarframkvæmda 18.07.2019

Málsnúmer 1907037Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Kristins G. Jóhannssonar, móttekið 18.07.2019, sem hann sendir bæjarstjórn fyrir hönd bænda í Eyrarsveit. Erindinu hefur verið beint til hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn felur bæjarstjóra að svara spurningum/athugasemdum þeim sem lagðar eru fyrir í erindinu í sjö liðum, um markmið hafnarframkvæmdarinnar, heildarkostnað, fjármögnun og fleira.

3.Breyting á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda

Málsnúmer 1904011Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti stöðu málsins, en skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt aðalskipulagsbreytinguna, vegna lengingar Norðurgarðs og tilheyrandi efnistöku. Bæjarráð hefur staðfest afgreiðsluna og tillagan verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar.

4.Hafnasamband Íslands - fundargerð 414

Málsnúmer 1909007Vakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Fundargerðir Siglingaráðs - fundir 14, 15 og 16

Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

6.Hafnasamband Íslands - Ráðstefna um konur og siglingar

Málsnúmer 1909017Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundargerð upplesin og staðfest.

Fundi slitið - kl. 18:55.