10. fundur 13. febrúar 2024 kl. 13:30 - 15:05 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) formaður
  • Arnar Kristjánsson (AK)
  • Garðar Svansson (GS)
Starfsmenn
  • Hafsteinn Garðarsson (HG) hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Fundurinn er vinnufundur, um forsendur fyrir stækkun hafnarsvæða, þarfir og framtíðarnýtingu.

1.Skipulagsmál á hafnarsvæði

Málsnúmer 2009033Vakta málsnúmer

Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar er í fjarfundi og sömuleiðis Árni Geirsson ráðgjafi hjá Alta, sem er hafnarstjórn innan handar við rýni á helstu forsendum vegna vinnu við framtíðarsýn fyrir hafnarsvæðið.

Í framhaldi af vinnu hafnarstjórnar á síðasta fundi, þann 16. janúar sl., ræddi hafnarstjórn undirbúning að næsta áfanga í stækkun á landsvæði Grundarfjarðarhafnar.

Farið var vel yfir nýtingu hafnar og hafnarsvæða, hópa viðskiptavina á hafnarsvæðunum og annað sem skiptir máli um framtíðarnýtingu núverandi hafnarsvæða og viðbótarsvæða í framtíðinni.

Vinnan er hluti af greiningu á helstu forsendum og meginhugmyndum um fyrirkomulag sem gæti hentað fjölbreyttri hafnarstarfsemi.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi - mæting: 13:30
  • Árni Geirsson, ráðgjafi hjá Alta - mæting: 13:30
Lokið var við fundargerð eftir fund og rafræns samþykkis aflað frá hafnarstjórnarmönnum.

Fundi slitið - kl. 15:05.