110. fundur 27. nóvember 2023 kl. 16:30 - 18:30 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir (ÓGG) formaður
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Patrycja Aleksandra Gawor (PAG)
Starfsmenn
  • Ólafur Ólafsson (ÓÓ) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólafur Ólafsson íþrótta- og tómstundafulltrúi
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Tilnefning til íþróttamanns ársins 2023

Málsnúmer 2311020Vakta málsnúmer

Fram voru lagðar þrjár tilnefningar íþróttamanna vegna ársins 2023 frá íþróttafélögum.

Farið var yfir tilnefningar og reglur sem um kjörið gilda.

Gengið var til kjörs á íþróttamanni ársins í samræmi við reglurnar. Niðurstöðu verður haldið leyndri þar til íþróttafólk ársins verður heiðrað, sem verður á gamlársdag.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi mun sjá til þess að farandbikar verði áritaður og að verðlaunaskjöldur verði útbúinn fyrir íþróttamann ársins. Aðrir íþróttamenn fái blómvönd. Öll fái þau áritað skjal.

Fulltrúum íþróttafélaganna var þökkuð koman og viku þau af fundi.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson f.h. Golfklúbbsins Vestarrs - mæting: 16:30
  • Mandy Nachbar f.h. Skotgrundar, Skotfélags Snæfellsness - mæting: 16:30
  • Sigríður G. Arnardóttir f.h. UMFG - mæting: 16:30

2.Endurskoðun á reglum um kjör á íþróttamanni Grundarfjarðar

Málsnúmer 2311021Vakta málsnúmer

Nefndin fór yfir reglur um kjör á íþróttamanni Grundarfjarðar.

Nefndin leggur til breytingar og sendir áfram til bæjarráðs/bæjarstjórnar til samþykktar.

3.Hvatagreiðslur - Frístundastyrkur

Málsnúmer 2311026Vakta málsnúmer

Góðar umræður fóru fram um hvatagreiðslur.
Nefndin telur að hvatapeningar geti virkað sem hvati fyrir börn til að stunda íþróttir.
Nefndin telur einnig að með hvatagreiðslum geti það aukið fjölbreytileika á vali barna til íþrótta- og tómstundaiðkunar.
Nefndin óskar eftir því að bæjarstjórn taki málið til umræðu.

4.Gönguleiðir og hjólreiðastígar

Málsnúmer 2311027Vakta málsnúmer

Góðar umræður fóru fram um göngu- og hjólreiðastíga í og við Grundarfjörð.

Nefndin felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að kanna hvaða göngu- og hjólaleiðir eru kortlagðar í og við Grundarfjörð.

5.Þríhyrningur

Málsnúmer 2311030Vakta málsnúmer

Nefndin leggur áherslu á að klára gerð og uppsetningu á sögu Þríhyrningsins.

Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að kanna stöðu á styrk sem fékkst til skiltagerðar og kanna með útfærslu og hönnun á skiltum. Einnig óskaði nefndin eftir því að það yrði haldið áfram að bæta við leiktækjum fyrir yngri börn, bæta við lýsingu í garðinn og ganga frá sviði, í samræmi við hugmyndavinnu um gerð/hönnun garðsins.

Lokið var við fundargerð eftir fund og rafræns samþykkis aflað frá nefndarmönnum.

Fundi slitið - kl. 18:30.