81. fundur 04. nóvember 2015 kl. 16:30 - 18:42 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Georg Einarsson (BGE)
  • Bjarni Jónasson (BJ)
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Sigríður Hjálmarsdóttir (SH)
Starfsmenn
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi
Dagskrá
Varaformaður (BGE) setti fund og gengið var til dagskrár:

1.Kosning formanns og ritara

Málsnúmer 1511003Vakta málsnúmer

Lagt til að Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir verði formaður nefndarinnar og Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi riti fundargerðir nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

Nýr formaður nefndar (RDB) tók við fundarstjórn.

2.Íþróttamaður ársins 2015

Málsnúmer 1410021Vakta málsnúmer

Íþróttamaður Grundarfjarðar hefur undanfarin ár verið kjörinn fyrsta sunnudag í aðventu. Íþrótta- og æskulýðsnefnd hefur yfirumsjón með valinu.
Ákveðið að kosning á íþróttamanni Grundarfjarðar fari fram í Sögumiðstöð þriðjudaginn 17. nóvember kl 18:00. Tilkynnt verður um kjörið og verðlaun afhent á aðventudegi kvenfélagsins 29. nóvember.

3.Stefna íþrótta- og æskulýðsnefndar

Málsnúmer 1511004Vakta málsnúmer

Farið yfir stefnu íþrótta- og æskulýðsnefndar.
Tillögur gerðar að breytingum. Menningar- og markaðsfulltrúa falið að uppfæra stefnuna. Vísað til næsta fundar.

4.Hreystivika

Málsnúmer 1501043Vakta málsnúmer

Lagt er til að hreystivika verði haldin í janúar í stað febrúar ár hvert. Farið yfir dagskrá síðustu hreystiviku og hugmyndir settar fram um hreystivikuna 2016.

Samhljóða samþykkt að hreystivikan 2016 standi yfir dagana 11.- 17. janúar.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:42.