182. fundur 11. september 2017 kl. 17:00 - 19:30 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólafur Tryggvason (ÓT) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Hrund Pálína Hjartardóttir (HPH)
  • Bjarni Jónasson (BJ)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Valdís Ásgeirsdóttir (VÁ)
  • Þorsteinn Birgisson (ÞB) skipulags- og byggingafulltrúi
  • Þórólfur Óskarsson (ÞÓ) skipulags- og byggingafulltrúi
  • Valgeir Magnússon Slökkviliðsstjóri
Starfsmenn
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Birgisson skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
Þórólfur Óskarsson sem mun leysa Þorstein Birgisson af næstu mánuði sat fundinn.

1.Aðalskipulag: Næstu skref og vinna

Málsnúmer 1709017Vakta málsnúmer

Björg Ágústdóttir leggur fram næstu skref í aðalskipulagsvinnu Alta ehf
Björg Ágústsdóttir kemur og talar í 20 mínútur. Kynnir framhaldið og leggur til að haldnir verði 4 vinnufundir.

2.Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðafólk

Málsnúmer 1707023Vakta málsnúmer

Óskað er eftir að tillögu um hugsanlega staðsetningu þjónustumiðstöðvar
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrrnefnd staðsetning henti einna best af öllum þeim möguleikum innan miðbæjar. Samkvæmt samþykktum bæjarins er lóðin á móti sögumiðstöðinni frátekin í miðbæjarkjarna. Reitur við Sæból hentar mjög illa vegna þess að hann er staðsettur við íbúðahverfi.
Kostir fyrrnefndar staðsetningar eru þeir að þjónustumiðstöð væri þá í góðu göngufæri við höfn, Þjónustumiðstöð myndi þá fylla uppí illa nýtt svæði.
Nefndin leggir til að Svarið ehf. verði gefin kostur á að hanna aðkomu og útfærslu á fyrrnefndri lóð.
-Jósef situr hjá.

3.Ölkeldan í Grundarfirði

Málsnúmer 1709019Vakta málsnúmer

Ölkeldan í Grundarfirði: Lögð er fram framkvæmdaáætlun vegna vinnu við ölkeldu og umhverfi.

4.Byggingarleyfi, Sæból 33-35

Málsnúmer 1708010Vakta málsnúmer

Sæból 33-35: lagt fram samþykki eigenda um breytingar á húsi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi.

5.Byggingarframkvæmdir Hlíð

Málsnúmer 1709015Vakta málsnúmer

Hlíð Eyrarsveit: Finnur M Hinriksson sækir um leyfi til að fokhelda byggingu í landi Hlíðar
Skipulags-og umhverfisnefnd felst á að leyfa Finni Hinriksyni að gera byggingu í landi Hlíðar fokhelda enda verði í öllu farið að tillögu hönnuðar hússins og munu framkvæmdir standast væntanlega hönnun hússins. Skila verður inn byggingastjóra og iðnmeistara undirskriftum áður enn vinna hefst.

6.Lóðaumsókn

Málsnúmer 1709012Vakta málsnúmer

Lóðaumsókn. Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir sækir um lóðina að Fellasneið 3
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita Sigurhönnu Ágústu Einarsdóttur að Fellasneið 3

7.Stöðuleyfi

Málsnúmer 1709013Vakta málsnúmer

Stöðuleyfi: Valgeir Þ Magnússon sækir um stöðuleyfi fyrir 2 gáma í 12 mán í Innri Látravík.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.

8.Tenging rafstrengs

Málsnúmer 1709016Vakta málsnúmer

Rarik leggur fram tillögur um tengingu innanbæjarkerfis Grundarfjarðar við nýja aðveitustöð.
Skipulags-og umhverfisvernd hafnar öllum tillögum um leið fyrir rafstreng en leggur jafnframt til nýja leið meðfram Grundargötu. Byggingarfulltrúa falið að útfæra leiðina í samvinnu við Rarik.    

9.Umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 1709018Vakta málsnúmer

Lagt er fram tillaga og óskir um stækkun lóðar Sólvöllum 2
Skipulags-og umhverfisvernd samþykkir erindið og óskar eftir fullfrágengnu lóðarblaði.
Lóð skal ekki vera nær Sólvöllum 6 en sem nemur 14 metrum svo nægjanlegt pláss sé fyrir veg og gangstéttar. Lóðin nær á milli Sólvalla og Nesvegar.  



Fundi slitið - kl. 19:30.