276. fundur 03. mars 2026 kl. 16:00 - 17:30 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Ásthildur Elva Kristjánsdóttir (ÁEK)
    Aðalmaður: Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
  • Lísa Ásgeirsdóttir (LÁ)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulagsfulltrúi
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Nanna Vilborg Harðardóttir (NVH) verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Formaður skipulags- og umhverfisnefndar setur fund og gengið er til dagskrár.

Gestir fundarins vegna sameiginlegrar umræðu nefnda eru bæjarfulltrúar og fulltrúar í hafnarstjórn og hafnarstjóri.

1.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 24. febrúar sl. lagði hafnarstjórn til við bæjarstjórn að gerðar yrðu breytingar á framlagðri deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar, í kjölfar breyttra forsendna við undirritun bindandi kauptilboðs hafnarinnar á Nesvegi 4 þann 20. feb. sl. Bæjarstjórn samþykkti þá tillögu á fundi sínum 26. febrúar sl. og var deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hafði verið 17. febrúar sl. tekin úr auglýsingu.



Í kjölfar þess var boðað til þessa fundar, sem er sameiginlegur fundur skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og bæjarstjórnar, til að ræða breyttar forsendur og þau atriði sem skipta máli við gerð nýrrar deiliskipulagstillögu.



Í upphafi fundar vakti bæjarstjóri athygli nefndarmanna á því að hver nefndarmaður þyrfti að gæta vel að hæfi sínu. Hafi nefndarmaður í hyggju að standa að eða styðja kæru eða andmæli við deiliskipulagstillögu þurfi hann að íhuga vel stöðu sína og hæfi við umfjöllun og afgreiðslu tillögu, sem nefndarmaður í skipulags- og umhverfisnefnd.



Í samræmi við breyttar forsendur og fyrrnefnda ákvörðun bæjarstjórnar 26. febrúar sl. er nú hafin vinna við gerð breyttrar deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins. Í samræmi við tillögu hafnarstjórnar þann 24. febrúar, sem samþykkt var af bæjarstjórn, er gert ráð fyrir að áfram sé "unnið að nýjum neðanbyggðarvegi og viðlegukanti, enda tekur mörg ár að tryggja stuðning fyrir fjárhagshlut ríkisins í slík mannvirki" eins og segir í bókun hafnarstjórnar.

Farið var yfir forsendur og helstu breytingar, sem vilji er til að gera á tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar.

Áfram er gengið út frá því að nýr vegur komi sem tengi hafnarsvæðið (norðurhluta) við þjóðveginn, austan Gilóss. Einnig er gert ráð fyrir að nýr viðlegukantur komi meðfram landfyllingu eins og í fyrri tillögu, en það er í samræmi við óskir hafnarstjórnar um að falla frá lengingu Miðgarðs sem viðbótarviðlegu fiskiskipa. Viðlegukantur við landfyllingu er talinn betri kostur en lenging Miðgarðs, skv. ráðgjöf Vegagerðarinnar (hafnasvið), m.t.t. áhrifa á hafnaraðstæður.

Helstu breytingar sem ræddar voru á fundinum og unnið verður að eru eftirfarandi:

- Ný landfylling sunnan Miðgarðs verði minnkuð sjávarmegin
- Lóðum á þeirri landfyllingu verði fækkað frá fyrri tillögu
- Svæði kringum Gilós stækkar og breytist talsvert
- Skoðað verði fyrirkomulag lóða austan Gilóss/við Suðurgarð, sem og fremstu lóð sunnan Gilóss (nr. 6 í tillögu) og skerpt á skilmálum þeirra. Þar verði áfram lögð áhersla á aðlaðandi og snyrtilega ásýnd, og að lóðirnar séu ætlaðar fyrir þjónustu, sbr. þegar kynnta skilmála.
- Breyting verði gerð á lóðum á landfyllingu næst Grundargötu, endurskoðaðar verði stærðir og lóðarmörk.

Fleiri atriði nefnd og rædd, en framangreindar eru þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar í vinnu við gerð breyttrar deiliskipulagstillögu.

Formaður ber upp tillögu um að vinna við breytta deiliskipulagstillögu muni byggja á þessum forsendum. Samþykkt með fjórum atkvæðum nefndarmanna, ÁEK situr hjá.
Aðrir gestir fundarins, bæjarfulltrúar og hafnarstjórn, lýstu sig ennfremur samþykka þessum forsendum.

Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að undirbúningi breyttrar tillögu á þessum forsendum.

Gestir

  • Jósef Ó. Kjartansson, forseti bæjarstjórnar - mæting: 16:00
  • Sigurður Gísli Guðjónsson, bæjarfulltrúi - mæting: 16:00
  • Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi, í fjarfundi - mæting: 16:00
  • Ágústa Einarsdóttir, bæjarfulltrúi - mæting: 16:00
  • Loftur Árni Björgvinsson, bæjarfulltrúi - mæting: 16:00
  • Garðar Svansson, bæjarfulltrúi og fulltrúi í hafnarstjórn - mæting: 16:00
  • Björg Ágústsdóttir, formaður hafnarstjórnar og bæjarstjóri - mæting: 16:00
  • Herborg Árnadóttir, skipulagsráðgjafi, í fjarfundi - mæting: 16:00
  • Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri - mæting: 16:00
  • Arnar Kristjánsson, fulltrúi í hafnarstjórn - mæting: 16:00
Gengið er frá fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 17:30.