191. fundur 05. nóvember 2026 kl. 17:00 - 19:40 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Guðbrandur Gunnar Garðarsson (GGG)
  • Eiríkur Þór Halldórsson (EÞH)
  • Lilja Björk Bjarnadóttir
  • Anna Rafnsdóttir (AR)
  • Tryggvi Hafsteinsson (TH)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Málefni leikskólans

Málsnúmer 2611006Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað leikskólastjóra
Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri, fór yfir starfsemi leikskólans, helstu áherslur og verkefni framundan.

2.Málefni grunnskólans 2026-2030

Málsnúmer 2611007Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð frá skólastjóra grunnskólans
Linda María Nielsen, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar, fór yfir starfsemi og starfsáætlun tónlistarskólans.
Linda María vék af fundi kl. 18:10.
Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri Grunnskóla Grundarfjarðar, fór því næst yfir starfsemi grunnskólans, helstu áherslur og áætlanir framundan.

3.Erindisbréf skólanefndar, kosning formanns og varaformanns

Málsnúmer 2611008Vakta málsnúmer

Loftur Árni Björgvinsson var kjörinn formaður skólanefndar og Guðbrandur Gunnar Garðasson varaformaður.

4.Menntastefna og innleiðing hennar

Málsnúmer 2402007Vakta málsnúmer

Nefndin ræddi menntastefnu sveitarfélagsins og innleiðingu hennar.

5.Starfsáætlun leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla

Málsnúmer 2611009Vakta málsnúmer

Umfjöllun um starfsáætlanir skólanna fór fram samhliða kynningum skólastjórnenda undir dagskrárliðum 1 og 2.

6.Skólanefnd, fjárhagsáætlun - áherslur, búnaður og fræðsla

Málsnúmer 2611010Vakta málsnúmer

Nefndin samþykkti fundaáætlun vetursins.

7.Kynning skólastjórnenda

Málsnúmer 2611011Vakta málsnúmer

Kynningar skólastjórnenda fóru fram undir dagskrárliðum 1 og 2.
Að loknum kynningum og umræðum viku skólastjórnendur og fulltrúar starfsfólks og foreldra af fundi kl. 18:35.

8.Skólanefnd - Önnur mál

Málsnúmer 2611014Vakta málsnúmer

Nefndin ræddi ýmis mál er varða starfsemi og starfssvið hennar, þar á meðal heimsóknir nefndarinnar í skóla sveitarfélagsins.
Samþykkt var að boða fulltrúa Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness á fund nefndarinnar í janúar.

Fundi slitið - kl. 19:40.